LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 2ja herbergja útsýnisíbúð á 3ju og efstu hæð í mikið endurbættu fjölbýli við Dvergabakka 2 í Reykjavík. Tvennar útsýnissvalir.
Eignin skiptist í opið miðrýni, eldhús, stofu og borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu en henni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegu þvottahúsi, hjóla- og vagnageymslu.
Birt stærð eignar er 63.3 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er 7,5 fm geymsla.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is
Nánari lýsing:
Forstofa eða opið miðrými með fatahengi, harðparket á gólfi.
Stofa og borðstofa, bjart og opið rými, harðparket á gólfi, útgengt á rúmgóðar austursvalir með miklu útsýni.
Eldhús með hvítri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og góður borðkrókur, harðparket á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp, harðparket á gólfi og útgengt á rúmgóðar vestursvali með miklu útsýni.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf með hvítrí innréttingu, salerni og baðkari með sturtustöng.
Geymsla á jarðhæð (7,5 fm)
Árið 2018 var skipt um þakjárn, rennur og niðurföll. Árin 2021 - 2024 var farið í frekari framkvæmdir utanhúss múrviðgerðir á húsi og svalargólfum, gluggum og svalarhurðum var skipt út samkvæmt niðurstöðum matskýrslu, allt húsið var málað, svalargólf voru lökkuð, útihurðar voru pússaðar og lakkaðar og skipt var um handrið í undirgöngum. Í íbúðinni er búið að skipta út gluggum og svalarhurðum, bæði til austurs og vesturs.
Húsgjöld eignar eru 9.743 kr. á mánuði í litla húsfélagið (stigahús) og þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélags, allur hiti og rafmagn í sameign. Húsgjöld eignar eru 18.928 kr á mánuði í stóra húsfélagið (Dvergabakki 2-20R) og þá er innifalinn allur almennur rekstur, rafmagn í sameign, rekstur bílastæða, húseigendatrygging, framkvæmdasjóður og þjónustukaup af Eignaumsjón.Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is.
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.Allir kaupendur okkar fá
Vildarkort LINDar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.