Fimmtudagur 12. nóvember
Fasteignaleitin
Skráð 12. nóv. 2026

Hólmabrún 7

EinbýlishúsSuðurland/Hveragerði-810
207.4 m2
5 Herb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
124.950.000 kr.
Brunabótamat
112.900.000 kr.
Mynd af Baldur Jezorski
Baldur Jezorski
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2023
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Á einni hæð
Fasteignanúmer
2521158
Landnúmer
233376
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
NÝLEGT EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ MEÐ BÍLSKÚR, HEITUM POTTI OG SKJÓLSÆLLI VERÖND
Baldur fasteignasali, beinn sími 450-0000, kynnir: Í einkasölu vandað og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Hólmabrún 7 í Hveragerði. Húsið er steinsteypt, byggt 2023 og búið netstýrðum gólfhita, loftræsingu með varmaendurvinnslukerfi og LED lýsingu með snjallstýringu. Í húsinu eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, lokanlegt sjónvarpsherbergi, tvö baðherbergi með sturtu og opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Úr stofu er útgengt á hellulagða verönd með heitum potti og skjólvegg.

Stærð eignarinnar er 207,40 fermetrar samkvæmt skráningu HMS, þar af er bílkúr 34,20 fermetrar. 

Aðal sölupunktar:
  • Byggt 2023, steinsteypt hús á einni hæð
  • Þrjú rúmgóð svefnherbergi, fataherbergi inn af hjónaherbergi
  • Lokanlegt og hljóðdempað sjónvarpsherbergi
  • Tvö baðherbergi, bæði með sturtu
  • Opið alrými með eldhúsi, eyju, stofu og borðstofu
  • Eldhúsinnrétting frá Axis með innfelldri uppþvottavél
  • Gólfhiti í öllu húsinu með netstýranlegri Salus stýringu
  • Loftræsikerfi með varmaendurvinnslu
  • LED lýsing í öllu húsinu með snjallstýringu
  • Hellulögð verönd með heitum potti og skjólvegg
  • Rúmgóður bílskúr með geymslulofti
  • Hiti í bílaplani
  • Viðhaldslítið hús, steinað að utan, ál/tré gluggar
Húsið skiptist í forstofu, alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, sjónvarpsherbergi, þrjú svefnherbergi, fataherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og innbyggðan bílskúr.

Nánari lýsing:
Forstofa: Flísar á gólfi.
Eldhús: Vönduð innrétting frá Axis með góðu skápaplássi og innfelldri uppþvottavél. Eyja með sætum aðskilur eldhús og stofu og á henni eru hitaþolnar flísar.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð í opnu rými með eldhúsi, stórum gluggum og útgengi á hellulagða verönd. Flísar á gólfi og hljóðdempandi dúkur í lofti.
Sjónvarpsherbergi: Lokanlegt með rennihurðum og vel hljóðdempað með dúk í lofti og veggklæðningu. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataherbergi inn af.
Svefnherbergi I: Rúmgott herbergi.
Svefnherbergi II: Rúmgott herbergi.
Baðherbergi I: Rúmgott með sturtu og glervegg, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Útgengt er á skjólsæla verönd.
Baðherbergi II: Rúmgott með sturtu, innréttingu og vegghengdu salerni.
Þvottahús: Rúmgott með innréttingu, vaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Þaðan er aðgengi að geymslulofti.
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr með geymslulofti.

Byggingarlýsing:
Húsið: Steinsteypt hús með viðhaldslítilli steiningu að utan og gluggum úr áli og tré.
Þak: Bárujárn á lektum, tjörupappi á klæðningu og hefðbundin loftun. Húsið er vel einangrað.
Hiti og loftræsing: Gólfhiti er í öllu húsinu með Salus stýringu sem hægt er að stýra í gegnum netið. Nettengd loftræsing með varmaendurvinnslu um varmahjól. Flísar á gólfum skila hitanum frá gólfhitanum vel.
Lýsing: Öll ljós eru LED ljós með snjallstýringu.
Bílaplan: Hiti í bílaplani.

Lóð og verönd: Hellulögð verönd út frá stofu með heitum potti. Veröndin er afmörkuð með skjólvegg og þar er gott skjól fyrir flestum áttum. Garðurinn er þökulagður og í honum eru um 230 tré og runnar, meðal annars gljámispill, gullregn, birki, fura og reyniviður, auk tveggja blómakera.

Staðsetning: Hveragerði er vinsæll og fjölskylduvænn bær í um 40 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Í bænum eru grunnskóli, leikskólar, sundlaugin Laugaskarði og Hamarshöllin, og stutt er í náttúruperlur eins og Reykjadal og fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir.

Nýlegt og vandað einbýlishús á einni hæð með snjallstýringu, bílskúr og skjólsælli verönd með heitum potti. Hentar vel fjölskyldum og þeim sem vilja meira pláss og rólegra umhverfi stutt frá höfuðborgarsvæðinu.

Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski, löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000

Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Greiðslumat.is - Að selja hjá Baldri
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2023
34.2 m2
Fasteignanúmer
2521158
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
12.100.000 kr.

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Birkimói 9
Á einni hæð
Opið hús:15. nóv. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Birkimói 9
Birkimói 9
815 Þorlákshöfn
108,2 m2
Raðhús
413
710 þ.kr./m2
76.800.000 kr.
Skoða eignina Birkimói 7
Á einni hæð
Opið hús:15. nóv. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Birkimói 7
Birkimói 7
815 Þorlákshöfn
171,4 m2
Raðhús
523
671 þ.kr./m2
115.000.000 kr.
Skoða eignina Birkimói 5
Á einni hæð
Opið hús:15. nóv. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Birkimói 5
Birkimói 5
815 Þorlákshöfn
171,4 m2
Raðhús
523
671 þ.kr./m2
115.000.000 kr.
Skoða eignina Birkimói 11
Á einni hæð
Opið hús:15. nóv. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Birkimói 11
Birkimói 11
815 Þorlákshöfn
104,9 m2
Raðhús
413
713 þ.kr./m2
74.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin