Þriðjudagur 16. september
Fasteignaleitin
Skráð 18. ágúst 2025
Deila eign
Deila

Kaldakinn 10

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
105.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
77.900.000 kr.
Fermetraverð
739.089 kr./m2
Fasteignamat
70.000.000 kr.
Brunabótamat
50.300.000 kr.
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1947
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2076573
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýlegt í bílgeymslu, en upprunalegt í húsi.
Raflagnir
Ekki vitað hvað hefur verið gert, en tafla í kjallara hefur verið endurnýjuð að einhverju leiti..
Frárennslislagnir
Skólp endurnýjað úr bílgeymslu og út í götu 2018. Þá var skólp undir húsi metið í lagi.
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta, annað upprunalegt.
Þak
Endurnýjað þakjárn á húsi ca 2008 og á bílgeymslu 2020.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Eitt og annað í frágangi þarf að klára. Blöndunartæki laus, opnir rafmagnstenglar, brotin þakrenna, sprunga í rúðu í stofu, vantar rúðu í bílgeymslu, ófrágengin klæðning á bílgeymslu o.fl.
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 3ja herb. íbúð á neðri hæð í tvíbýli að Kaldakinn 10 í Hafnarfirði. Sér inngangur er inn í íbúð og henni fylgir bílgeymsla sem búið er að útbúa íbúð í til útleigu. Garður er stór og gróinn. Útgengi er út úr stofu út á pall og garð til suðurs. Beggja megin við hús eru sér bílastæði eignar. Göngufæri er í leik- og grunnskóla. Einnig í Flensborgarskóla og niður í miðbæ Hafnarfjarðar. 
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 

Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 105,4 m2. 


**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI. KÍKTU Í HEIMSÓKN !

*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SKOÐUN FIMMTUD. 21. ÁGÚST
 
Söluyfirlit má nálgast hér
Nánari lýsing:
Forstofa er inn af steyptum tröppum. Sér inngangur. Snjóbræðslulagnir eru í stigapalli og tröppum og hægt að tengja inn í grind. Forstofa er með tvöföldum skáp. Gólf er flísalagt. Inn af forstofu er gengið niður í kjallara. 
Baðherbergi er inn af forstofu og er með nýrri skápaeiningu undir handlaug, salerni og baðkari með sturtuhengi. Veggfestur speglaskápur. Opnanlegt fag á glugga. Gráar gólfflísar. 
Eldhús er með hvítri innréttingu á tveimur veggjum. Milli efri og neðri skápa eru hvítar veggflísar. Gluggi snýr út að götu til norðausturs. Gott gólfpláss fyrir eldhúsborð og stóla. Inn af eldhúsi er annað svefnherbergið. Parket á gólfi.
Stofa er björt með glugga á A-gafli húss. Einnig eru gluggar og útgengi út í garð til suðurs. Parket á gólfi. 
Herbergi I er inn af eldhúsholi og er það herbergi stærra en hitt. Engir fataskápar. Parket á gólfi.
Herbergi II er inn af holi íbúðar og með glugga út í garð til suðurs. Engir fataskápar. Getur þetta herbergi einnig nýst sem vinnuherbergi. Parket á gólfi.
Þvottahús er í kjallara. Stæði og tengi. Lofthæð er ca 180 cm. Steypt gólf og niðurfall. Útgengi er að kjallaratröppum.
Geymsla er í sameign í kjallara. Einnig er þakrými í sameign.
Bílgeymsla er innréttaður í dag sem 2ja herb. íbúð. Gluggar eru út í garð til suðausturs. Hurð er út í garð. Einnig er hurð inn af innkeyrslu við götu. Birt stærð er 38,2 m2.
Útidyratröppur niður í kjallara hafa verið múrviðgerðar og þar eru einnig snjóbræðslulagnir og hægt að tengja inn í grind.

Eigandi hefur ekki búið í eigninni og er því kaupandi hvattur til að skoða eignina vel.

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/09/201625.500.000 kr.29.000.000 kr.105.4 m2275.142 kr.Nei
12/11/200717.820.000 kr.20.800.000 kr.105.4 m2197.343 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 1947
38.2 m2
Fasteignanúmer
2076573
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
13.000.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álfholt 46
Opið hús:18. sept. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Álfholt 46
Álfholt 46
220 Hafnarfjörður
109.5 m2
Fjölbýlishús
413
701 þ.kr./m2
76.800.000 kr.
Skoða eignina Smárabarð 2
Opið hús:18. sept. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Smárabarð 2
Smárabarð 2
220 Hafnarfjörður
115.5 m2
Fjölbýlishús
413
648 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Flatahraun 1
Bílastæði
Skoða eignina Flatahraun 1
Flatahraun 1
220 Hafnarfjörður
102.2 m2
Fjölbýlishús
312
733 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Brattholt 1
Skoða eignina Brattholt 1
Brattholt 1
220 Hafnarfjörður
130.4 m2
Fjölbýlishús
413
598 þ.kr./m2
78.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin