
Viltu kynnir: Fallegt tengihús á 2 hæðum ásamt bílskúr, samtals 203,6 fm á eftirsóttum stað í 109 RVK. íbúðin er skráð 170,8 fm og bílskúr 32,8 fm. Neðri hæð skiptist í forstofu, rúmgóða stofa og borðstofa, eldhús, þvottahús og gestasnyrtingu, stór tréstigi liggur upp á efri hæð sem skiptist í þrjú rúmgóð herbergi, sjónvarpshol og baðherbergi.
Falleg eign friðsælum stað í Seljahverfi. Örstutt í skóla og leiksvæði fyrir börn. Stutt í þjónustu og útivist.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Allar nánari upplýsingar veita:
Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100, elisabet@viltu.is
Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, karolina@viltu.is
LÝSING:
Neðri hæð:
Forstofa með góðum fataskápum og flísar á gólfi,
Eldhús með nýlegri vandaðri innréttingu og steinn á borðum, flísalagt er milli skáp og parket á gólfi,
þvottahús rúmgott með innréttingu og útgangi út í garð, flísar á gólfi.
Stofa / borðstofa er rúmgóð og björt með útgengi á timbur verönd og garðinn, afgirtur gróinn garður, flísar á gólfi.
Gestasnyrting með upphengdu salerni, lítilli innréttingu og flísar á gólfi.
Léttur timbur stigi liggur upp á hæðina.
Efri hæð:
Hjónaherbergi með góðum fataskápum og flísar á gólfi,
Barnaherbergi eru 2 bæði rúmgóð, með fataskápum og flísar á gólfum.
Sjónvarpsrými er mjög rúmgott og bjart, möguleiki væri að bæta þar við einu svefnherbergi í viðbóð, flísar á gólfi, útgengi á stórar suður svalir með útsýni yfir garðinn.
Baðherbergi rúmgott með góðri innréttingu, sturtuklefa og upphengdu salerni, flísar á gólfi og á veggjum.
Gólfhiti er á allri neðri hæðinni og baðherberginu á efri hæðinni.
Bílskúr og geymsla: í dag skiptist bílskúrinn í geymslu og herbergi/tómstundarými, úr herberginu er útgengi í garðinn.
Bílastæði eru fyrir framan bílskúrinn og hellulögð innkeyrslan er með hitalögn.
Lóðin og garðurinn eru mjög snyrtileg og gróin, góður timbur pallur til suðurs.
Húsið á hlutdeild í fallegum og grónum sameiginlegum garði með leiktækjum og verönd.
Falleg, vel skipulögð og mikið endurnýjuð eign á vinsælum stað þar sem stutt er í skóla og leikskóla.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 17/09/2015 | 39.500.000 kr. | 49.500.000 kr. | 203.6 m2 | 243.123 kr. | Nei |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
605 | 171,8 | 119 | ||
861 | 371.978,1 | 119,5 | ||
276 | 195,2 | 149,9 | ||
109 | 111,3 | 72,9 | ||
810 | 130,6 | 84,9 | ||
603 | 190,6 | 119,9 |