Föstudagur 23. október
Fasteignaleitin
Skráð 6. okt. 2026

Staðarborg 24

RaðhúsSuðurnes/Vogar-190
131.1 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
86.600.000 kr.
Fermetraverð
660.564 kr./m2
Fasteignamat
74.350.000 kr.
Brunabótamat
67.700.000 kr.
JM
Júlíus M Steinþórsson
Byggt 2023
Svalir
Fasteignanúmer
2527924
Landnúmer
235005
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
04
Lóðarréttindi
Leigulóð
eignasala.is kynnir eignina Staðarborg 24, 190 Vogar, nánar tiltekið eign merkt 01-04, fastanúmer 252-7924 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Staðarborg 24 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 252-7924, birt stærð 131.1 fm.
EIGNASALA.IS KYNNIR – STAÐARBORG 24D, 190 VOGAR
Glæsilegt og einstaklega vel skipulagt 131,1 m² FIMM HERBERGJA ENDARAÐHÚS Á TVEIMUR HÆÐUM í Grænubyggð í Vogum. Eignin er með FJÓRUM SVEFNHERBERGJUM, tveimur baðherbergjum, sérþvottahúsi, björtu alrými, sér garði og glæsilegu sjávarútsýni af efri hæð.
BÓKIÐ SKOÐUN – VIÐ FINNUM TÍMA SEM HENTAR ÞÉR!
Eignin er byggð árið 2023 og hentar fjölskyldum einstaklega vel. Skipulagið er gott með einu svefnherbergi á jarðhæð og þremur á efri hæð. Aukin lofthæð yfir hluta alrýmisins og stórir gluggar á báðum hæðum skapa mikla birtu og skemmtilega rýmistilfinningu.
NÁNARI LÝSING
Jarðhæð:
Forstofa: Rúmgóð forstofa. Inn af forstofu er gott svefnherbergi sem getur einnig nýst vel sem gesta- eða vinnuherbergi.
Gestasnyrting: Flísalögð í hólf og gólf með hvítri innréttingu, upphengdu salerni og handklæðaofni.
Eldhús: Glæsileg innrétting frá Parka sem nær upp í loft. Eldhúseyja með fallegum háf, kvarssteinn á borðum og undirfelldur vaskur. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja og eldhústæki eru frá Electrolux.
Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott opið alrými með eldhúsi. Aukin lofthæð er yfir hluta rýmisins og stórir gluggar hleypa mikilli birtu inn. Úr stofu er gengið út í sér garð.
Fallegur stigi úr aski liggur milli hæða og setur skemmtilegan svip á alrýmið.
Efri hæð:
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með útgengi á vestursvalir þar sem nýtur glæsilegs og óhefts sjávarútsýnis.
Svefnherbergi II og III: Tvö góð barnaherbergi til viðbótar.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með sturtu og sturtugleri, upphengdu salerni, hvítri innréttingu og handklæðaofni.
Þvottahús: Sér þvottahús, flísalagt í hólf og gólf.
Garður og útisvæði: Úr stofu er gengið út í sér garð. Fallega hannaður skjólveggur skilur að eignir og tengi eru fyrir heitan og kaldan pott.
Útigeymsla: Sér útigeymsla er framan við húsið og er hún utan birtra fermetra eignarinnar.
HELSTU KOSTIR
• Endaraðhús • 131,1 m² • Byggt 2023 • Fjögur svefnherbergi • Svefnherbergi á jarðhæð • Tvö baðherbergi  • Sérþvottahús  • Bjart og rúmgott alrými  • Aukin lofthæð  • Parka eldhúsinnrétting • Kvarssteinn á borðum • Stigi úr aski • Vestursvalir út af hjónaherbergi • Glæsilegt sjávarútsýni  • Sér garður • Lagnir fyrir heitan og kaldan pott  • Sér útigeymsla
Virkilega falleg og vel skipulögð fjölskyldueign þar sem fjögur svefnherbergi, endastaðsetningin, bjart alrými, góður garður og sjávarútsýnið eru meðal helstu kosta.
BÓKIÐ SKOÐUN – VIÐ FINNUM TÍMA 
Hafðu samband við einhvern okkar og bókaðu skoðun:
Júlli – 899 0555,  Jói – 864 9677, Bjarni Fannar – 773 0397,  Reynir – 777 0915,   Skúli – 898 7209
EIGNASALA.IS – Hafnargata 90a, Keflavík
 tölvupóstur julli@eignasala.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/02/202460.600.000 kr.399.500.000 kr.651.8 m2612.918 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (44)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hrafnaborg 8
Opið hús:23. okt. kl 12:30-13:00
Skoða eignina Hrafnaborg 8
Hrafnaborg 8
190 Vogar
107,1 m2
Fjölbýlishús
413
Fasteignamat 4.470.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Hrafnaborg 6
Efsta hæð
Skoða eignina Hrafnaborg 6
Hrafnaborg 6
190 Vogar
129,4 m2
Fjölbýlishús
514
532 þ.kr./m2
68.800.000 kr.
Skoða eignina Mávatjörn 12
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Mávatjörn 12
Mávatjörn 12
260 Reykjanesbær
156,4 m2
Parhús
43
690 þ.kr./m2
107.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 501
Bílastæði
Strandgata 26 íb. 501
220 Hafnarfjörður
126,5 m2
Fjölbýlishús
312
1240 þ.kr./m2
156.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin