Föstudagur 5. júní
Fasteignaleitin
Opið hús:10. júní kl 17:00-17:30
Skráð 5. júní 2026

Vatnasel 1

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
295.3 m2
10 Herb.
9 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
175.000.000 kr.
Fermetraverð
592.618 kr./m2
Fasteignamat
136.250.000 kr.
Brunabótamat
125.200.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2054421
Landnúmer
112817
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Frá því að húsið var byggt
Raflagnir
Frá því að húsið var byggt
Frárennslislagnir
Frá því að húsið var byggt
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Hefur verið yfirfarið
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Nýtt á skrá! Afar fallegt og vel viðhaldið 10 herbergja fjölskylduhús með tvöföldum bílskúr, tveimur baðherbergjum og gestasnyrtingu. 

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallegt 10 herbergja 295,3 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum (pöllum) sem er teiknað af Eðvarð Guðmundssyni og Sigurði Kjartanssyni arkitektum. Eignin er skráð (birtir fermetrar) 228,3 fermetrar en er í raun 295,3 fermetrar að stærð þar sem u.þ.b. 67 fermetrar á neðstu hæð hússins eru óskráðir. Eignin skiptist í 152,5 fermetra aðalhæð, 93,4 fermetra neðri hæð og stóran 49,4 fermetra bílskúr. 8-9 svefnherbergi eru í húsinu í dag (möguleiki að nýta neðri hæð hússins sem sér íbúð). Um er að ræða afar vel staðsett hús í grónu fjölskylduhverfi við Vatnasel 1 í Reykjavík (sem er hluti af lokaðri götu við Ystasel). Húsið er afar sjarmernandi með stórri stofu með arinn og útgengi á stórar svalir til vesturs. Falleg gluggasetning setur mikinn svip á húsið og er útsýni til fjalla frá stofum og svölum. Húsið fengið mjög gott viðhald í gegnum árin og ber húsið þess vel merki að utan sem innan. Baðherbergið var hannað af Guðbjörgu Magnúsdóttur og eldhúsið endurnýjað og sérsmíðað árið 2000.


Aðalhæðin (efri hæð): Er vel skipulögð með stórum alrýmum/stofum og útgengi á rúmgóðar svalir til vesturs. Fallegur arinn (hannaður af Sturlu Má Jónssyni) er staðsettur fyrir miðri stofu. Stofa rúmar vel borðstofu og setustofu/arinstofu. Eldhús er opið að hluta til við borðstofu. Forstofa með gestasnyrtingu inn af. Fallegt hol tekur við af forstofu og svefngangur með fjórum svefnherbergjum og baðherbergi I.

Neðri hæð: Gengið er niður nokkur þrep á neðri hæð hússins. Þar tekur við fimmta svefnherbergið og er útgengi í bakgarð hússins frá holi/gangi þar fyrir framan. Innangent er frá holi inn í tvöfaldan bílskúr. Neðsti pallur hússins (óskráðir fermetrar) er með rúmgóðu þvottaherbergi og stórri geymslu þar inn af. Auk þess er gengið inn í stórt rými sem skiptist í fimm svefnherbergi og baðherbergi sem væri hægt að nýta sem séríbúð (sem væri þá hægt að stilla upp sem stofu, tveimur svefnherbergjum, eldhúsi og baðherbergi).


Bílskúr: Er 49,4 fermetrar að stærð og tvöfaldur. Inngangengt er frá neðri hæð hússins og gluggar til norðurs. Bílskúr er upphitaður með heitu/köldu vatni.

Lóðin er 631,0 fermetrar að stærð. Tyrfður garður að hluta með fallegum trjágróðri og beðum. Lóðin er skjólgóð og með viðarverönd til suðvesturs. Framan við hús er hellulögð stétt að húsi og fyrir framan bílskúr. Góð heimreið er að húsi sem rúmar allt að fjórar bifreiðar.

Nánari lýsing:

Aðalhæð.
Forstofa: Með flísum á gólfi og skápum.
Gestasnyrting: Með flísum, salerni og vaski.
Hol: Flísar á gólfi og fallegar sérsmíðaðir skápar við vegg.
Hjónaherbergi: Með harðparketi, skápum í loft og gluggar til norðurs/austurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Flísalögð sturta og baðkar með sturtutækjum. Innrétting við vask með granít á borði. Upphengt salerni, handklæðaofn og gluggi til vesturs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi og glugga til austurs.
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til austurs.
Svefnherbergi IV: Með harðparketi á gólfi og glugga til vesturs.
Stofa: Gengið upp nokkur þrep frá holi. Stofa er stór og rúmar vel borðstofu, setustofu/arinstofu. Flísar á gólfi og innfelld ljós og kastarar í loftum. Gluggar til vesturs, norðurs og austurs með fallegu útsýni til fjalla. Útgengi á svalir.
Svalir: Eru stórar og flísalagðar. Snúa til vesturs með fallegu útsýni til fjalla/Esjunni.
Eldhús: Með flísum á gólfi og fallegri sérsmíðari eldhúsinnréttingu með tækjaskáp. Miele bakaraofn, uppþvottavél, spansuðu helluborð og háfur. Flísar á milli skápa, borðkrókur og gluggar til norðurs/austurs.

Neðri hæð.
Gengið er niður nokkur þrep og komið í hol þar sem gengið er inn í eitt svefnherbergi og bílskúr. Einnig útgengi á baklóð.
Svefnherbergi V:
Með harðparketi á gólfi, skápum og gluggar til norðurs/austurs.
Neðsti pallur er óskráður (ekki inn í birtum fermetrum). Er um 67 fermetrar að stærð.
Þvottaherbergi: Er rúmgott með máluðu gólfi, innréttingu við vask og tengi fyrir þvottavél/þurrkara.
Geymsla: Er stór og staðsett inn af þvottaherbergi. Gluggalaus með máluðu gólfi.

"Auka íbúð" var tekin í gegn fyrir 2-3 árum síðan. Er nýtt sem heild af húsinu en gæti verið nýtt sem aukaíbúð/útleigueining.
Hol/gangur: Með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi VI: Gæti verið nýtt sem stofa/sjónvarpsstofa. Harðparketi á gólfi og gluggar til austurs.
Svefnherbergi VII: Með harðparketi á gólfi og glugga til austurs.
Svefnherbergi VIII: Með harðparketi á gólfi og glugga til austurs.
Svefnherbergi IX: Gæti verið nýtt sem eldhús. Allar lagnir til staðar. Harðparketi á gólfi og gluggi til vesturs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og salerni. Innrétting við vask og gluggar til vesturs. Hægt að setja upp sturtu (tengingar til staðar).

Bílskúr: Er stór eða 49,4 fermetrar að stærð. Innganghurð við bílskúrshurð. Innangengt úr húsi. Upphitaður og gluggar til norðurs. Heitt og kalt vatn og vaskur.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (48)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Úugata - endaraðhús 40
Friðjón_vefur (2).jpg
Úugata - endaraðhús 40
270 Mosfellsbær
239.2 m2
Raðhús
624
623 þ.kr./m2
149.000.000 kr.
Skoða eignina Litlavör 23
Opið hús:08. júní kl 18:00-18:30
Litlavör 23
Skoða eignina Litlavör 23
Litlavör 23
200 Kópavogur
130 m2
Einbýlishús
514
844 þ.kr./m2
109.700.000 kr.
Skoða eignina Bröndukvísl 17
Opið hús:06. júní kl 12:00-12:30
bröndukvísl 17.jpg
Skoða eignina Bröndukvísl 17
Bröndukvísl 17
110 Reykjavík
208.5 m2
Einbýlishús
625
719 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Svölutjörn 63
106,9 aug.jpg
Skoða eignina Svölutjörn 63
Svölutjörn 63
260 Reykjanesbær
204.4 m2
Einbýlishús
514
523 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin