Valhöll fasteignasala og Sölvi Sævarsson kynna: Glæsilegt og töluvert endurnýjað raðhús á tveimur hæðum við Faxabraut 39C, í 230 Reykjanesbæ. Vandaðar innréttingar og gólfefni frá 2021-2024. Skjólsæl timburverönd í suður með skjólveggjum út frá stofu. Sérstæður rúmgóður bílskúr með heitu og köldu vatni ásamt sjálfvirkum hurðaropnara. - Nýlegar Innréttingar, harðparket og hurðar frá 2022
- Eldhúsinnrétting og tæki endurnýjað árir 2022
- Rafmagn, rofar og tenglar endurnýjað árið 2022
- Skólp- og neyslulagnir endurnýjaðar 2022
- Nýlegt þakjárn og þakrennur frá 2024
Eignin er í heild skráð 175,9 m² skv. Hms, þar af er 44,4 m² bílskúr.
Fasteignamat ársins 2026 er 77.900.000 kr.
Eignin skiptist í eftirfarandi:Á neðri hæð er anddyri, snyrting, eldhús, stofur og þvottahús. Á efri hæð er sjónvarpshol þrjú rúmgóð svefnherbergi ásamt baðherbergi.
Húsið er mikið endurnýjað og vandlega innréttað á árunum 2021 – 2024. Innanhúshönnun var framkvæmd af Völu Björgu Arnardóttur, innanhússarkitekt og eiganda. Öll vinna við endurbætur voru framkvæmdar af fagaðilum.
Allar nánari uppl. veitir Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali í s. 618-0064 eða solvi@valholl.is Nánari lýsing:Anddyri – Er með harðparketi á gólfi og eru speglarennihurðir sem veitir aðgengi að rými undir stiga sem hefur verið breytt í fataherbergi og aðgengi að glæsilegri snyrtingu við anddyri.
Snyrting – Er björt með opnanlegum glugga og flísum á gólfi og upp með upphengdu salerni, innréttingu með handlaug og litlum spegli þar fyrir ofan.
Eldhús – Eldhúsinnrétting frá 2022 er vönduð frá HTH innréttingum með góðu vinnu- og skápaplássi. Efri og neðri skápar, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur með frysti. Bökunarofn í vinnuhæð, spanhelluborð og vifta þar fyrir ofan. Stór tækjaskápur í eldhúsi.
Þvottahús – Er inn af eldhúsi sem nýtist líka sem aukainngangur og að hluta til sem búr. Góð innrétting með tengi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Steinteppi á gólfi.
Stofan og borðstofan – Er björt í opnu alrými með harðparketi á gólfi. Hurð út frá stofu á skjólgóða timburverönd með skjólveggjum, veröndin snýr til suðurs.
Teppalagður steyptur stigi með járnhandriði veitir aðgengi að efri hæð þar sem er gott sjónvarpsrými, þrjú herbergi og glæsilegt baðherbergi.
Hol/ sjónvarpsrými – Á efri hæð er bjart með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi – Er allt endurnýjað á afar glæsilegan máta og er með flísum á gólfi og á veggjum. Walk inn sturta og dökkt litað gler sem skilur að sturtu, innbyggð blöndunartæki í sturtu, upphengt vandað salerni. Baðinnrétting frá HTH innréttingum með hvítri acryl handlaug/plötu, speglaskápur við innréttingu með baklýsingu. Þiljur í loftum sem gefa rýminu gott yfirbragð. Gluggi á baðherbergi.
Barnaherbergi 1 – Með nýlegum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Hjónaherbergi – Rúmgott með nýlegum fataskápum og harðparketi á gólfi. Hurð úr hjónaherbergi út á suðursvalir.
Barnaherbergi 2 – Ágætlega rúmgott með nýlegum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Innréttingar og gólfefni: Eldhús- og baðinnréttingar eru nýlegar vandaðar frá HTH innréttingum frá árinu 2022. Innihurðar eru frá Birgisson, yfirfelldar í dökkum lit með felliþröskuldum. Vandað harðparket frá Ebson og vandaðar flísar á baðherbergjum.
Bílskúrinn er mjög rúmgóður og bíður upp mikla möguleika. Bílskúr er með heitu og köldu vatni ásamt sjálfvirkum hurðaopnara. Gluggi í enda bílskúrs ásamt gönguhurð út á lóð. Nýr gluggi og gönguhurð fylgja með bílskúr sem á eftir að skipta um.
Upplýsingar frá eigendum með framkvæmdir síðustu ára.- Allar lagnir, bæði skólp og neyslulagnir endurnýjaðar 2022.
- Allt rafmagn þ.m.t. rafmagnstafla endurnýjað 2022. Allir rofar og tenglar eru úr Living Now hönnunarlínu Bticino.
- Harðparket er frá EPSON. Teppi á stigatröppum er frá Álfaborg.
- Allar innihurðar eru frá Birgisson og eru með lyklalausum læsingum.
- Allir gluggar og útihurðar hafa verið endurnýjaðar og þeirri vinnu lokið 2024.
- Innréttingar eru frá HTH. Eldhústæki frá AEG og Samsung.
- Nýtt þakjárn og nýjar þakrennur 2024. Húsið málað að utan 2024. Nýtt þakjárn á bílskúr 2021. Loft-hitakerfi er í húsinu, þ.e. hiti í lofti á báðum hæðum og var yfirfarið og prófað 2024. Hitaveitugrind og þrýstijafnari endurnýjaður 2024.
Nánasta umhverfi: Stutt í skóla og leikskóla ásamt almennri verslun og þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 / solvi@valholl.is
– eða skrifstofa / s.588-4477 / valholl@valholl.is Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.