Atli og Hrafnkell á LIND fasteignasölu kynna í einkasölu fallega 3ja herbergja íbúð með sérinngang á jarðhæð í nýlegu tveggja hæða fjölbýli með lyftu. Eigninni tilheyrir afgirtur sérafnotareitur og merkt bílastæði á bílaplani.
Dalsbraut 26 er skráð sem hér segir: Eign 250-2771, birt stærð 74.3 fm. Þar af er geymsla skráð 4,3 fm.
Húsið er byggt árið 2019 og er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með báruáli og lerki klæðningu.
Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í sameign.
Nánari upplýsingar veita:
Atli Karl - aðstoðamaður fasteignasala / atli@fastlind.is / 6624252
Hrafnkell Pálmi - löggiltur fasteignasali / hrafnkell@fastlind.is / 6908236
Nánari lýsing:
Gengið inn um sérinngang í forstofu með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með parketi á gólfi og hvítri innréttingu með góðu skápa- og borðplássi ásamt ofni, helluborði og gufugleypi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, sturta, upphengt salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi l með góðum fataskáp og parketi á gólfi (10,3 fm).
Svefnherbergi ll með parketi á gólfi og fataskáp (8,1 fm).
Stofa með parketi á gólfi og þaðan er hurð út á afgirta verönd (51,4 fm).
Íbúðinni fylgir sérgeymsla, ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.
Sérmerkt bílastæði á bílaplani (bílaplan er í óskiptri sameign skv. eignaskiptayfirlýsingu).
Stutt í þjónustukjarna með Krónuverslun, Bónusverslun, apóteki og fleiri verslunum.
Stapaskóli er í göngufæri þar sem starfræktur er leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli, frístundaskóli og félagsmiðstöð. Þar er jafnframt íþróttahús, sundlaug, bókasafn og fjölnotasalur sem nýtist einnig hverfinu sem einskonar menningarmiðstöð.
Lind fasteignasala ehf kynnir eignina Dalsbraut 26, 260 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-03, fastanúmer 250-2771 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.