SÉRINNGANGUR, AFGIRTUR GARÐUR OG MERKT BÍLASTÆÐIBaldur fasteignasali, beinn sími 450-0000, kynnir: Í einkasölu bjarta og rúmgóða fimm herbergja fjölskylduíbúð á jarðhæð með sérinngangi við Dísaborgir 2 í Borgahverfi, 112 Reykjavík. Úr stofu er útgengt á sérafnotaverönd og garð, eldhúsið er opið við stofu og borðstofu og íbúðinni fylgir merkt bílastæði við húsið. Skóli, leikskóli og leikvellir eru í göngufæri og stutt er í alla þjónustu í Spönginni.
Stærð eignarinnar er 107,50 fermetrar samkvæmt skráningu HMS. Íbúðinni fylgir 3,7 fermetra sérgeymsla á jarðhæð.
Aðal sölupunktar:- Sérinngangur beint inn í íbúðina
- Sérafnotaverönd og garður út frá stofu
- Þrjú svefnherbergi, auðvelt er að bæta við fjórða svefnherberginu
- Bjart og opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu
- Falleg hvít Brúnás eldhúsinnrétting með eyju
- Parket á öllum herbergjum og alrými
- Baðherbergi með baðkari og sturtugleri, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara
- Merkt bílastæði við húsið
- Sérgeymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla
- Barnvænt hverfi, skóli og leikskóli í göngufæri
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými, fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Þá fylgir íbúðinni jafnframt sérgeymsla á jarðhæð, sérafnotaverönd, merkt bílastæði og hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Nánari lýsing:Forstofa: Sérinngangur. Flísar á gólfi og stór fataskápur..
Eldhús: Falleg hvít Brúnás eldhúsinnrétting með eyju og góðu skápa- og vinnuplássi, bakaraofn í vinnuhæð, vifta og tengi fyrir uppþvottavél. Eldhúsið er opið við stofu og borðstofu og gluggi er við vinnusvæðið. Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð í opnu rými með eldhúsi. Parket á gólfi og útgengt á sérafnotaverönd og garð.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með stórum fataskápum með speglahurðum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi I: Gott herbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II: Við forstofu, með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og hluta veggja. Baðkar með sturtu og sturtugleri, innrétting undir handlaug, spegill, salerni, ofn og opnanlegur gluggi. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: 3,7 fermetra sérgeymsla fylgir.
Sameign: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Verönd og garður: Sérafnotaverönd út frá stofu, um 5,6 x 10,4 metrar samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu.
Bílastæði: Merkt bílastæði fylgir íbúðinni.
Húsið: Steinsteypt fjölbýlishús byggt 1997.
Nýlegar framkvæmdir:- 2024: Ný eldhúsinnrétting frá Brúnás
- 2024: Nýjar innihurðir og hurðakarmar
Staðsetning: Dísaborgir eru í Borgahverfi í Grafarvogi, rólegu og barnvænu hverfi þar sem skóli, leikskóli og margir leikvellir eru í göngufæri. Stutt er í Spöngina með Bónus, heilsugæslu og annarri þjónustu, og Egilshöll og Grafarvogslaug eru skammt undan. Fallegar göngu- og hjólaleiðir liggja um hverfið.
Björt og rúmgóð fjölskylduíbúð með sérinngangi, sérafnotaverönd og merktu stæði á góðum stað í Grafarvogi.
Nánari upplýsingar veitir:Baldur Jezorski, löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000Skoða meðmæli -
Verðmat fasteigna -
Greiðslumat.is -
Að selja hjá Baldri