Laugardagur 25. apríl
Fasteignaleitin
Skráð 25. apríl 2026

Oddsholt 54

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
41.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
33.500.000 kr.
Fermetraverð
809.179 kr./m2
Fasteignamat
19.350.000 kr.
Brunabótamat
24.950.000 kr.
Mynd af Jón Smári Einarsson
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2216761
Landnúmer
169192
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegt
Gluggar / Gler
Tvöfallt gler
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Sólpallur
Lóð
100
Upphitun
Rafmagn/Loft í loft
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Kaupendum er bent á að skoða eignina vel og helst með fagmanni. Samþykktar teikningar af eigninni eru ekki í samræmi við skipulag hússins, þ.e.a.s. það er stærra en teikningar gefa til kynna og er það óleyfisskylt, sem er ósamþykkt breyting skv. byggingaryfirvöldum. Móða er í tveimur rúðum í sólstofu. Hluti þakkants á geymsluskúr og og skjólgirðingar þarfnast viðhalds. Upptalning þessi þarf ekki að vera endanleg.
Jón Smári Einarsson lgf. s. 8606400 og Fasteignaland kynna eignina Oddsholt 54, 805 Selfoss, 50 fm sumarhús skammt frá Borg í Grímsnesi.

Lýsing:
Um er að ræða fallegt sumarhús á 7.550 fm. eignarlóð úr jörðinni Minni Borg Grímsnesi.
Skv, skráningu HMS er birt stærð hússins 41,4 fm, en byggt var við það um 9 fm yfir inngang í húsið þannig að það er í dag um 50 fm auk um 6 fm sérstæðs geymsluskúrs á lóðinni.
Húsið er byggt úr timbri árið 1993 og er klætt að utan með standandi timburklæðningu.

Að innan er húsið klætt með máluðum panil, harðparket er á öllum gólfum.
Eignin skiptist í forstofu, geymslu með frystiskáp, baðherbergi með sturtu og tvö svefnherbergi með fataskápum.
Stofan er björt og falleg og samliggjandi við eldhús í opnu rými með góðri lofthæð, eldhús er með hvítlakkaðri innréttingu.
Í húsinu er 50 lítra hitakútur frá árinu 2011, hitað er upp með loft í loft varmadælu frá Rafstjórn ehf. Húsið er byggt af Borgarhúsum ehf.
Allur frágangur við húsið er til fyrirmyndar, á lóðinni er fallegur trjágróður og er hún afgirt og mjög skjólsæl.
Góða aðkoma og gott bílaplan innan lóðar.

Svæðið er lokað með rafmagnshliði (símahlið/fjarstýring). Frábær staðsetning.

Árgjald til sumarnúsafélagsins fyrir 2025 er kr. 25.165,-

Möguleiki er að fá hluta af innbúi með í kaupum á eigninni.

Eignin Oddsholt 54 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 221-6761, birt stærð 41.4 fm.

Staðsetning og nærumhverfi:
Fjarlægð frá Reykjavík er ca 70 km sé ekið um Hellisheiði. 
Á Borg er glæsileg sundlaug, einnig er stutt í gólfvellina t.d. í Kiðabergi og Öndverðanesi.
Stutt í alla þjónustu á Selfossi sem er aðeins í ca 24 km. fjarlægð.

Nánari upplýsingar veitir:
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.is
s. 860-6400

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 . 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/07/20189.840.000 kr.13.400.000 kr.41.4 m2323.671 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kjalbraut Vaðnes 4
Opið hús:25. apríl kl 13:00-14:00
DJI_0036.jpg
Kjalbraut Vaðnes 4
805 Selfoss
123.1 m2
Sumarhús
424
666 þ.kr./m2
82.000.000 kr.
Skoða eignina Reykjavegur 16 Bústaður
Reykjavegur 16 Bústaður
806 Selfoss
41.9 m2
Sumarhús
312
570 þ.kr./m2
23.900.000 kr.
Skoða eignina Koparslétta 10
Skoða eignina Koparslétta 10
Koparslétta 10
162 Reykjavík
59.1 m2
Atvinnuhúsn.
1
574 þ.kr./m2
33.900.000 kr.
Skoða eignina Fauskás 6
Skoða eignina Fauskás 6
Fauskás 6
311 Borgarnes
129.1 m2
Sumarhús
313
464 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin