Eignaland kynnir til sölu jörðina Stíflu í Landeyjum. Um er að ræða 120 hektara jörð sem er að stórum hluta í rækt. Á jörðinni stendur mikið endurnýjað 225,2 fm einbýlishús með sex svefnherbergjum ásamt góðum útihúsum. Falleg aðkoma er að jörðinni og býður hún upp á mikla möguleika.
Nánari upplýsingar eru hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is
Íbúðarhús Einbýlishúsið er 225,2 fm og hefur verið mikið endurnýjað. Húsið stendur á sér eins hektara lóð. Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðu plássi. Í forstofu er einnig baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir sturtu. Alrými hússins er bjart og mjög rúmgott og þar eru eldhús og borðstofa. Inn af alrýminu er stofa ásamt sjónvarpsholi. Skrifstofa er inn af sjónvarpsholi. Svefnherbergin eru sex talsins og eru þau á sér svefnherbergisgangi ásamt baðherbergi. Húsið er rúmgott og býður skipulag þess upp á góða nýtingarmöguleika fyrir stóra fjölskyldu. Falleg aðstaða er í kringum húsið og rúmgott bílastæði.
Jörðin Stífla er um 120 hektarar að stærð og er landið að stórum hluta í rækt. Einbýlishúsið stendur á sér eins hektara lóð. Falleg aðkoma er að Stíflu og er jörðin síðasti bærinn á þessum afleggjara, það tekur um 5 mín að keyra að honum frá þjóðvegi.
Útihús Á jörðinni eru sambyggð fjós og hlaða þar sem í dag er rekið lausagöngufjós með mjaltaþjóni. Byggingarnar eru samkvæmt skráningu HMS samtals um 800 fm og voru byggðar á árunum 1960–1987. Ástand bygginganna er að mestu leyti ágætt en lítill hluti þeirra þarfnast viðhalds og endurbóta. Einnig er á jörðinni 283,2 fm vélaskemma, samkvæmt skráningu HMS, byggð árið 2005.
Stífla er áhugaverð 120 hektara jörð í Landeyjum með mikið endurnýjuðu og rúmgóðu íbúðarhúsi, ræktuðu landi og góðri aðstöðu til búrekstrar. Jörð sem býður upp á mikla möguleika og er með fallega aðkomu. Jörðin verður seld án véla og bústofns.
Nánari upplýsingar er hjá fasteignasala: Jens Magnús Jakobsson í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
12/09/2023
44.117.000 kr.
120.000.000 kr.
1132.2 m2
105.988 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.