SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR
TORG FASTEIGNASALA KYNNIR Í SÖLU: Falleg, 120,4 fm íbúð á jarðhæð með sér inngang, við Bjarkarás 3A, Garðabæ. Eignin skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi og borðstofu/stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu innan íbúðar. Gengið er út á sérafnotapall frá stofu. Aukin lofthæð er í íbúð. Hjóla- og vagnageymsla í sameign. Hleðslustöðvar á bílaplani.
Nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir lögfræðingur og löggiltur fasteignasali í síma 690 4966 eða matthildur@fstorg.isKomið er inn í rúmgott anddyri með vel skipulögðu fatahengi og flísalagt með ljósum flísum.
Þaðan er gengið inn á gang sem tengir önnur rými íbúðar.
Alrými er með eldhúsi og stofu. Eldhús er rúmgott með hvítri innréttingu og viðarlituðum efri skápum, borðplötur eru hvítar. Bakarofn er í vinnuhæð og helluborð í eyju. Innfelldar lýsingar undir efri skápum. Flísar eru á gólfi í eldhúsi.
Útgengt úr borðstofu út á rúmgóðan sérafnotapall.
Hjónaherbergið er rúmgott og með opnu, vel skipulögðu fatahengi.
Barnaherbergi er einnig rúmgott.
Geymsla (6,3 fm) er innan íbúðar.
Baðherbergið er með hvítri og viðarlitaðri innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu og skilrúmi úr gleri, upphengdu salerni og handklæðaofn. Ljósar flísar í hólf og gólf.
Þvottaherbergi er með góðri innréttingu fyrir vélar í vinnuhæð og flísalagt gólf.
Gólfefni á íbúðinni er ljóst parket nema í anddyri, eldhúsi, baðherbergi og geymslu, þar sem eru ljósar flísar.
Um er að ræða glæsileg íbúð með aukinni lofthæð, sem er vel staðsett í Ásahverfinu í Garðabæ. Öll helsta þjónusta í nágrenni, grunn- og leikskólar, verslanir, íþróttir og heilsugæsla.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.