Hafið samband til að bóka einkaskoðun.
KAUPSTAÐUR fasteignasala kynnir í einkasölu SJÁVARBORGIR 8A, 190 Sveitarfélagið Vogar.
Fimm herbergja endaraðhús á einni hæð. Smellið hér fyrir staðsetningu
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.
Sjávarborgir 8A, samtals 107.7 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag: Anddyri/gangur, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, fjögur herbergi, baðherbergi/þvottur og geymsla.
NÁNARI LÝSING:
Anddyri/gangur, flísar á gólfi, tvöfaldur fataskápur.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er úr stofu út á timburverönd, upptekið loft, lofthæð innan eignarinnar á hæsta punkt eru u.þ.b. fjórir metrar.
Eldhús, ljósgrá melamine innrétting með svartri Quartz borðplötu, span helluborð, ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur með frysti.
Herbergin eru þrjú, öll með harðparketi á gólfum og fataskápum
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, sturta og vaskinnrétting, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er fyrir ofan baðherbergi, aðgengi frá einu herbergjanna.
Gólfsíðir gluggar í alrými.
Danfoss stýrikerfi fyrir gólfhita.
Aukin lofthæð.
Lagnaleið fyrir rafmagnshleðslu út á bílastæði.
Lagnaleið fyrir heitan pott.
Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu Sjávarborg 8 Vogum skjal nr. 448-A-001467/2024:
Eign 0101, fasteignanúmer: F2520087, (Sjávarborg 8A). Birt stærð íbúðar, 0101: 107,7 m². Íbúðin samanstendur af stofu/alrými með eldhúsi, anddyri, baðherbergi/þvottaherbergi, geymslu, hjónaherbergi, 3 barnaherbergjum, ásamt geymslulofti. Sérnotafletir tilheyrandi íbúðinni, eru sýndir á grunnmynd. Hlutfallstala í matshluta 01 og lóð: 18,53%
SJÁVARBORGIR 8A er endaraðhús í raðhúsalengjunni Sjávarborgir 8A-8F, er raðhúsalengja sem samanstendur af sex raðhúsaíbúðum. Húsið er timburhús á einni hæð, klætt að utan með liggjandi bárujárni og timbri í bland. Þak er klætt bárujárni. Lóð er gróin, verönd við bakhlið eru úr timbri (lerki) og er skjólveggur á milli húsa, skjólveggur er aftan við hús á lóðarmörkum, þar er innbyggður geymsluskúr. Hellulögð stétt er framan við húsið, snjóbræðsla er í stétt.
Tvö bílastæði eru fyrir framan við hús.Lóðin er 1.451,7m², Landnúmer 233152, lóðin er leigulóð í eigu Sveitarfélagið Vogar, lóðarleigusamningur til 75 ára frá 4.05.2022, skjal nr. 448-C-004026/2022.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða kaupstadur@kaupstadur.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 09/09/2024 | 57.250.000 kr. | 77.500.000 kr. | 107.7 m2 | 719.591 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
270 | 105,9 | 78,9 | ||
108 | 79,8 | 69,9 | ||
101 | 100,1 | 92 | ||
113 | 106,8 | 79,9 | ||
221 | 82,6 | 69 | ||
221 | 108,9 | 80,5 |