Domus Fasteignasala á Norðurlandi vestra kynnir til sölu Mánagötu 4 á Hvammstanga.
Smelltu hér til að skoða kynningarmyndband um eigninaUm er að ræða glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum. Húsið er samtals 242,4 fm að stærð frá árinu 1983. Góður sólpallur og rúmgóður garður eru við húsið og stórar svalir sem henta einstaklega vel til að ná kvöldsólinni og bjóða upp á magnað útsýni. Steypt bílastæði er fyrir framan húsið og rafdrifin bílskúrshurð. Húsið hefur fengið gott viðhald og er almennt í góðu standi. Umhverfi hússins hefur fengið verðlaun frá Húnaþingi vestra fyrir að vera ávallt vel hirt og ber natni og virðingu eigenda fyrir umhverfi sínu gott vitni. Skraut á lóðinni vitnar til fyrri tíma landbúnaðarsamfélagsins og gefur götumyndinni fallegan svip.
Nánari lýsing:Efri hæð:Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi og góðu skápaplássi.
Stofa er mjög stór og rúmgóð, hátt er til lofts og parket á gólfum. Mikið og gott útsýni er úr stofu.
Eldhús er með viðarlitri eldhúsinnréttingu sem er heilleg og snyrtileg og parket er á gólfi.
Svefnherbergi eru tvö á efri hæð og eru bæði rúmgóð með góðu skápaplássi.
Baðherbergi á efri hæð er með flísum á gólfi og baði, sturtu og hvítri innréttingu.
Bílskúr er snyrtilegur með góðu geymsluplássi í lofti og rafdrifinni hurð.
Neðri hæð:Stofa á neðri hæð er mjög rúmgóð og parket er á gólfi. Útgengt er út í garð úr stofu niðri.
Svefnherbergi á neðri hæð eru tvö, með parketi á gólfi og góðu skápaplássi.
Baðherbergi er á neðri hæð með salerni og hvítri innréttingu.
Þvottahús á neðri hæð er rúmgott með hvítri innréttingu og skolvask.
Rúmgóð geymsla er á neðri hæð.
Um er að ræða mjög gott fjölskylduhús á góðum stað þar sem stutt er í alla þjónustu.
Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 domus@domus.is
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 sol@domus.isForsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.