** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt einbýlishús á einni hæð innst í botnlanga á glæsilegri 1.889,9 m2 eignarlóð við Bjargslund 17 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 134,8 m2 en búið er að teikna stækkun og bílskúr þar sem heildarstærð fer úr 134,8 m2 í 361,9 m2. Í heild má byggja allt að 370 m2 á lóðinni skv. deiluskipulagi. Um er að ræða frábærlega staðsetta eign í útjaðri byggðar sem býður upp á mikla möguleika. Rétt við lóðarmörkin rennur Varmá og er stutt í náttúruna og gönguleiðir. Skv. upplýsingum frá seljanda var farið í eftirfarandi framkvæmdir: Árið 2016 var skipt um eldhúsinnréttingu, settur gólfhiti í alrými og skipt um gólfefni. Rafmagn var yfirfarið og mikið endurnýjað. Í dag er verið að taka baðherbergi í gegn en seljandi klárar það fyrir afhendingu. Á baðherbergi verður flísalagt gólf, innrétting, 'walk in' sturta, baðkar og salerni. Smelltu hér til að fá söluyfirlit og nánari upplýsingarNánari lýsing:Forstofa er með fataskáp og flísum á gólf
Stofa er með parketi á gólfi. Mikil lofthæð, gólfsíðir gluggar og innbyggð lýsing. Úr stofu er gengið út á timburverönd í suðurátt.
Eldhús er með hvítri innrétting og parketi á gólfi. Í innréttingu er span helluborð, innbyggð uppþvottavél, tveir ofnar, ofnskúffa og vaskur. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu.
Svefnherbergi nr. 1 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 4 er með parket á gólfi. Er í dag nýtt sem geymsla.
Gangur er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi verður með flísum á gólfi, innréttingu, 'walk in' sturtu, baðkari og salerni.
Þvottahús er með flísum á gólfi og innréttingu með skolvask. Gert er ráð fyrir tveimur þvottavélum og þurrkara í vinnuhæð. Úr þvottahúsi er gengið útgengt.
Lóð. Húsið stendur innst í botnlanga á um 1.890 m2 eignarlóð rétt við Varmá. Á lóðinni óskráð geymsla (um 15 m2) og stór timburverönd í suðurátt. Stórt bílaplan og hleðslustöð sem fylgir.
Nýjar teikningar: Búið er að teikna stækkun fyrir húsið. Skv. teikningu er gert ráð fyrir einbýli 207,1 m2, bílskúr 80,0 m2 og nýtanlegu rými 74,8 m2 eða samtals 361,9 m2. Skv. upplýsingum frá seljanda er búið að greiða gatnagerðargjöld fyrir allt að 220 m2. Einnig er búið að teikna burðarþol og lagnauppdrætti sem fylgir með.
Verð kr. 137.000.000,-