DOMUSNOVA KYNNIR NÝTT PARHÚS 3JA - 4RA HERBERGJA Á EINNI HÆÐ FULLBÚIÐ AÐ INNAN SEM UTAN INNST Í BOTNLANGA. AFHENDING ER ÁÆTLUÐ Í OKTÓBER 2025, GRÓIÐ HVERFI VIÐ AÐALTÚN 2, MOSFELLSBÆ.
ATH! Myndir af innréttingum eru tölvugerðar.
Algjör paradís - nýbyggt á gróinni og skógi vaxinni lóð, glæsilegt parhús á einni hæð. Stór sólpallur í suður. Hellulagt plan fyrir framan hús með snjóbræðslu. Frágengin lóð í kring ásamt ruslatunnuskýlum. Húsin eru hönnuð af ALARK arkitektum - Jakob Emil Líndal - Arkitekt FAÍ. Húsið eru byggt úr forsteyptum einingum frá BM-Vallá. Einangrað og klætt að utan með koparlituðu báruáli og lerki. Gólfsíðir gluggar í stofu sem snúa út að grónum garði með útgengi á stóra verönd. Gólfhiti í öllum rýmum. Hljóðeinangrandi loftadúkur. Álklæddir trégluggar frá Húsasmiðjunni með þreföldu gleri. Sérsmíðaðar innréttingar frá HTH með innfelldum ísskáp og uppþvottavél öll heimilistæki eru frá Ormsson. Helluborð og vaskur innfelld í borðplötu. Innfelldar ljósar innihurðir. Planka vinylparket í eikarlit á gólfum frá Gólfefnabúðinni. Baðherbergi, þvottaherbergi og geymsla eru með flísum á gólfi.
Nánari upplýsingar veita:
Vera Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali / s. 8661110 / vera@domusnova.is
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / agnar@domusnova.is
Nánari lýsing
Forstofa: Með beige litum fataskápum frá HTH, Planka vinylparket, eikarlitað, á gólfi.
Stofa/borðstofa/eldhús: Innréttingar frá HTH í beige og dökkri eik. Ljósar borðplötur Laminate Levanto Marble.
Innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél frá Ormsson,
Vandaður undirfelldur stálvaskur. AEG spanhelluborð með niðurfellanlegri viftu. Veggofn úr stáli.
Blöndunartæki frá Grohe, Planka vinylparket, eikarlitað, á gólfi.
Hjónaherbergi: Fataskápar uppí loft frá HTH. Beige litaðir í samræmi við aðrar innréttingar hússins, Planka vinylparket, eikarlitað, á gólfi.
Herbergi: Planka vinylparket, eikarlitað, á gólfi.
Sjónvarpshol: Planka vinylparket, eikarlitað, á gólfi, möguleiki á að nýta sem 3 herbergið/skrifstofu.
Baðherbergi: Innréttingar frá HTH, dökk eik. Handlaug er hluti af borðplötu baðinnréttingar í ljósum lit. Handklæðaofn. Gólf og endaveggur flísalagt. Stór walk in sturta. Tæki frá Grohe.
Þvottahús: Flísar á gólfi og tengi fyrir þvottavél og vask.
Geymsla: Flísar á gólfi.
Fallegt parhús á fallegum stað í Mosfellsbæ þar sem gróður og lækur rennur hjá. Stutt í alla helstu þjónustu, glæsilegur gólfvöllur í nágreni og hægt að njóta veitinga í gólfskála, stutt í sundlaugina þar sem einnig er hægt að fara í gufu og kaldann pott.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.