Falleg og vel skipulögð íbúð á jarðhæð (íbúð 102) með sérinngangi við Vindakór 5-7 í Kópavogi. Þrjú góð svefnherbergi, góður sólpallur, þvottahús innan íbúðar, baðherbergi með sturtuklefa og baðkari. Bílastæði með hleðslustöð í lokaðri bílageymslu. Nýleg eldhúsinnrétting, gólfefni, skápar og innréttingar á baðherbergi og í þvottahúsi. Íbúðarrýmið er skráð 114 fm hjá HMS og geymslan 18.8 fm, samtals 132,8 fm.
Íbúð staðsett í afar barnvænu hverfi í göngufæri við grunnskóla, leikskóla, Kórinn og lágvöruverslun. Fallegar gönguleiðir í náttúrunni umhverfis hverfið.
Verið að ljúka múrviðgerðum á húsinu auk þess sem það verður málað að utan. Samkvæmt samningi við verktaka á verkinu að ljúka í lok ágúst 2026.
Skipt var um þakpappa á húsinu árin 2024-2025.
Bókið skoðun hjá Hrafnhildi Björk Baldursdóttur í síma 862-1110 eða hrafnhildur@valholl.is
eða Óskari H. Bjarnasen lgf. í síma 691-1931 eða oskar@valholl.is
Nánari lýsing:
Forstofa: Lokuð forstofa, flísar á gólfi, fataskápur og hillur
Tvö svefnherbergi hlið við hlið: bæði með harðparketi og fataskápum.
Þvottahús: flísar á gólfi, stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Innrétting og vaskur.
Baðherbergi: flísar í hólf og gólf, sturtuklefi og baðkar. Nýleg innrétting og skápar.
Hjónaherbergi: harðparket á gólfi og fataskápar.
Eldhús og stofa í stóru opnu rými.
Eldhús: U- laga nýleg innrétting, neðri skápar og efri að hluta. Háfur yfir helluborði. Flísar á gólfi.
Stofa: rúmgóð, parketlögð og útgengt á stóran sólpall.
Sérbílastæði í lokuðum bílakjallara.
Sérgeymsla í kjallara hússins.
Húsgjöld eru 41.825 kr. á mánuði.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
Endurbætur síðastliðinna ára:
2022 (innan íbúðar): Skipt um eldhúsinnréttingu. Innrétting og vaskur sett upp í þvottahúsi. Skipt um vaskinnréttingu og bætt við skápum á baðherbergi. Skipt um blöndunartæki í allri íbúðinni. Skipt um ofnalokur. Skipt um parket. Gluggar málaðir að innan og hurðir málaðar. Skipt um öll stormjárn í gluggum.
Heildarhús:
2023-2024: innsprautun í sprungur þar sem þurfti.
2024-2025: skipt um þakpappa og flasningar og vatnshalli lagaður á þaki, þaksvölum og lyftuhúsi. Smíðaverk Þaklagnir sáu um framkvæmd.
2026: múrviðgerðir og málun á húsinu utanverðu - yfirstandandi framkvæmdir.
Nánari upplýsingar veita:
Hrafnhildur Björk Baldursdóttir í síma 862-1110 eða hrafnhildur@valholl.is eða
Óskar H. Bjarnasen lgf. í síma 691-1931 eða oskar@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.