Nes fasteignasala kynnir í einkasölu:
Lögbýlið Litla-Gröf, 311 Borgarbyggð ásamt hlunnindum, ræktun og öllum mannvirkjum.
Um er að ræða mjög vel staðsetta jörð um 13 km norður af Borgarnesi.
Jörðin er landstór, 515 ha að stærð. Land jarðarinnar liggur frá Skarðslæk að sunnan og mætir þar löndum Svignaskarðs og Heyholts. Að sunnan og vestan eru lönd Galtarholts og Birkibóls og Stóra-Fjalls að norðan og austan.
Land jarðarinnar er að hluta mýrar og flóar, sundurskornir af lágum ásum sem víða eru vaxnir birkikjarri. Þá eru lítilsháttar veiðiréttur í Skarðslæk sem fylgir jörðinni. Auk þess er möguleiki á rjúpna- og gæsaveiði. Jörðin hefur ekki verið í ábúð undanfarin ár og henni fylgir ekki framleiðsluréttur en tún jarðarinnar, skráð 21,40 ha í fasteignaskrá HMS, eru slegin og hirt að hluta.
Tvö skipulögð sumarhúsahverfi eru annars vegar á ás milli þjóðvegar 1 austan Valbjarnarvegar og hins vegar með svo nefndum Grafarlæk, norðan vegarins.
Leigðar eru lóðir undir 9 sumarhús, þar af þar af ein lóð leigulaus til ársins 2060.
Byggingar á jörðinni:
Íbúðarhús byggt 1938. Húsið er á einni hæð, 72,10 fm að stærð skv. skráningu HMS. Húsið skiptist í forstofu, 2 herbergi, eldhús og þvottahús með salerni.
Viðbyggð geymsla, 41,20 fm að stærð skv. skráningu HMS. Húsið og geymslan eru steinsteypt í mjög lélegu ásigkomulagi.
Fjós og hlaða byggingarár 1944-45 í mjög lélegu ásigkomulagi.
Fjárhús byggð 1958, 240,9 fm að stærð. Steinsteypt bygging, óeinangruð en veggir og þak virðast í lagi.
Hlaða byggð 1958, 114,7 fm að stærð. Steyptir veggir og járn á þaki.
Hér er um mjög álitlega jörð að ræða vegna staðsetningar og landstærðar. Jörðin hentar hvort sem er til búskapar eða sem frístundajörð. Þá er mögulegt að skipuleggja frístundasvæði til viðbótar því sem fyrir er. Sannkölluð sveitarómantík sem er stutt frá höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt skammt frá þjónustu í Borgarnesi og annarri afþreyingu í Borgarfirði.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.
Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.