Gullfalleg fjögurra herbergja enda íbúð á 2.hæð birt stærð 97,3 m2, ásamt bílskúr birt stærð 27,4 m2 samtals 124,7 m2. Sér þvottahús er í íbúð. Næg bílastæði og hleðslustöðvar.. Fjölskylduvænt hverfi, stutt í leikskóla og alla þjónustu.
Skoðaðu eignina í 3DNánari lýsing:Forstofa: Með flísum. Stór skápur með spegli.
Barnaherbergi: Tvö barnaherbergi, annað rúmgott með skáp.
hitt með skáp og hornglugga.
Hjónaherbergi: Bjart, með tveimur gluggum, stór skápur.
Þvottaherbergi: Flísalagt gólf. Ljós innrétting og hillur.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum, upphengt salerni, handklæðaofn,
sturtuklefi og baðkar. Baðherbergið er með opnanlegum glugga.
Eldhús: Sprautulökkuð hvít innrétting, mikið skápapláss, eyja með helluborði.
Stofa og borðstofa: Eru í einu opnu rými. Útgengt á rúmgóðar grill suður svalir.
Mjög snyrtilegur stigagangur, nýlega málaður og teppalagður.
Hjólageymsla er í sameign.
Hringdu núna og bókaðu tíma í skoðun hjá Ásmundi Skeggjasyni asi@hofdi.is Gsm 895 3000.