Kasa fasteignir 461-2010.
Stapasíða 13 G - Vel skipulögð 5 herbergja 164,3 fm raðhúsaíbúð á tveimur hæðum með sambyggðum bílskúr á góðum stað í Síðuhverfi.
Eignin skiptist í:
Neðri hæð: Forstofa, þvottahús, snyrting, eldhús, stofa og bílskúr.
Efri hæð: Hol, fjögur svefnherbergi og baðherbergi
Forstofa er með flísum á gólfi og hvítum neðri skápum.
Þvottahús er við hliðina á forstofu og nýtist sem annar inngangur inn í íbúðina. Þar eru flísar á gólfi og eikar innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús er með harð parketi á gólfi og eikar innréttingu með flísum á milli skápa. Rúmgóður borðkrókur. Uppþvottavél fylgir með við sölu eignar.
Stofa er með harð parketi á gólfi, stórum suður glugga og hurð út á rúmgóða timbur verönd. Hvítir sjónvarpsskápar fylgja með við sölu eignar.
Teppi er á stiga milli hæða og lítil geymsla er undir stigapalli.
Hol á efri hæð er með harð parketi á gólfi og spónlögðum eikar fataskápum. Loft er tekið upp og með loftaklæðningu.
Svefnherbergin eru fjögur, þrjú barnaherbergi, öll með harð parketi á gólfi og loftaklæðningu. Úr einu barnaherberginu er hurð út á steyptar suður svalir. Hjónaherbergi er með harð parketi á gólfi og fataskáp með rennihurðum.
Baðherbergi hefur verði endurnýjað fyrir einhverjum árum. Þar eru flísar á gólfi og veggjum, spónlögð eikar innrétting, upphengt salerni, sturta, baðkar og opnanlegur gluggi. Hiti er í gólfi og innfelld lýsing í lofti.
Snyrting á neðirhæð er með flísum á gólfi, handlaug, upphengdu wc og eikar efriskáp.
Bílskúr er með lökkuðu gólfi, hillum og rafdrifnum opnara á innkeyrsluhurð.
- Búið að skipta um alla glugga og svalahurðir á efrihæð.
- Hleðslustöð fyrir rafbíl fylgir með við sölu.
- Rúmgóð timburverönd er á baklóðinni.
- Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum, gólfefni, eldhús, baðherbergi, innihurðar, loftaklæðning, rafmagnstenglar o.fl.
- Búið er að taka inn ljósleiðara
- Húsið var málað að utan sumarið 2018
- Nýtt þak sett á húsið sumar 2025
- Áætlað fasteignamat 2026 - 85.250.000.-
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is
------------
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.