Fimmtudagur 6. ágúst
Fasteignaleitin
Opið hús:10. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 5. ágúst 2026

Stekkjarflöt 12

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
192 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
165.000.000 kr.
Fermetraverð
859.375 kr./m2
Fasteignamat
154.050.000 kr.
Brunabótamat
96.960.000 kr.
Mynd af Sigríður Rut Stanleysdóttir
Sigríður Rut Stanleysdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1965
Garður
Pallur
Bílskúr
Á einni hæð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2072310
Landnúmer
119514
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
ekki vitað
Raflagnir
upprunarlegt
Frárennslislagnir
endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
tvöfalt gler
Þak
sjá yfirlýsingu seljanda um ástand eignarinar
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
verönd
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Fyrirhugaðar framkvæmdir
sjá nánar yfirlýsingu seljanda sem er fyllt út af dóttir seljandans. Samkvæmt upplýsingum frá seljanda var eldhúsið endurnýjað árið 1989
Gallar
skipta þarf um þakrennur og útidyrahurðir.  Ein eldshúshellan er biluð og eru eldhústækin orðin gömul. Sjá nánar inná yfirlýsingu seljanda um ástand eignarinar. 
OPIÐ HÚS Á MÁNUDAGINN 10.ÁGÚST KL. 16.40-17.30 EIGNIN VERÐUR EKKI SÝND FYRIR OPIÐ HÚS
Fasteignasalan TORG kynnir: Fallegt, bjart og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð á fallegri lóð og mjög vel staðsett. Það er að hluta upprunalegt en hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina, aðeins einn eigandi. Möguleiki er að stækka húsið. Í dag eru 3 svefnherbergi, en möguleiki er t.d. að breyta sjónvarpsherbergi í herbergi. Að auki er 1 herbergi/geymsla inn af þvottaherberginu. Eignin gæti losnað fljótt. 
Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir, löggiltur fasteignasali í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.is

 
Nánari lýsing:
Forstofa við aðalinngang: Komið er inn í forstofu með fatahengi og flísalögðu gólfi.
Inn af forstofu er góð miðja sem rýmir meðal annars sjónvarpsstofuna sem hægt væri að stúka af og breyta í auka svefnherbergi. Útgengt er á timburverönd frá sjónvarpsherberginu. Beint á móti forstofunni er stofa og borðstofa, eldhús á hægri hönd og svefnherbergisgangur á vinstri hönd. 
Forstofa við eldhúsinngang: Komið er inn í forstofu með flísalögðu gólfi og fataskáp, úr henni er inngangur í eldhús, þvottaherbergi, búr og bílskúr.
Eldhús: Góð innrétting með góðu geymsluplássi  U-laga  með ofn í vinnuhæð, helluborð  og tengi fyrir uppþvottavél. Góður borðkrókur við glugga, parket á gólfi. Inn af eldhúsi er komið inn í forstofu við eldhúsinngang.
Stofa/borðstofa: Eru rúmgóðar og bjartar. Arinn er í stofunni. Eitt þrep er frá borðstofu í stofuna. Parket á gólfi. Góðir gluggar sem veita góða birtu. Útgengt er út á timburverönd sem er að hluta yfirbyggð.
Aðalbaðherbergi:  Hefur verið endurnýjað, vaskur, salerni, baðkar og veggskápur. Veggir, gólf og loft flísalagt.
Svefnherbergisgangur: 3 svefnherbergi. Parket er á gólfi og útgengt frá svefnherbergisgangi út á timburverönd sem er að hluta yfirbyggð.
Hjónaherbergi: Er með rúmgóðum fataskápum og parketi á gólfi. Inn af svefnherberginu er sér baðherbergi með sturtu.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi: Flísalagt baðherbergi með vaski, salerni og sturtu. Opnanlegur gluggi.
Svefnherbergi: Eru bæði með parket á gólfi og fataskápum.
Þvottaherbergi: Er rúmgott, með innréttingu, vaski, lokuðum skápum og tengi fyrir þvottavél sem og aðstöðu fyrir þurrkara. Flísalagt gólf, útgengt í garð. Inn af þvottaherberginu er aukaherbergi/geymsla.
Búr: Lítið herbergi með hillum.
Bílskúr: Er með sjálfvirkri hurð, rafmagni og tengi fyrir vask.
Heimkeyrslan er upphituð.
Garður er afar fallegur og skjólgóður í góðri rækt.
Eignin er einstaklega vel skipulögð og vel staðsett á eftirsóttum stað í Garðabæ. Húsið er steinsnar frá íþróttasvæði Stjörnunnar og Flataskóla. Barnvænt hverfi.
Möguleiki er að stækka húsið. Nýtingarhlutfall hússins má vera allt að 0,35% af stærð lóðar. Nýtingarhlutfall er núna 0,22%. Hægt er að lesa nánar um skilmála inni á kortavefnum www.map.is/gardabaer undir deiliskipulag.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir fasteignasali í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila,
en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og
ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1965
23.7 m2
Fasteignanúmer
2072310
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.510.000 kr.

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hlíðarbyggð 38
Opið hús:13. ágúst kl 17:30-18:00
Hlíðarbyggð 38
210 Garðabær
205.3 m2
Raðhús
524
842 þ.kr./m2
172.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurgata 100
Bílskúr
Opið hús:09. ágúst kl 15:00-16:00
Skoða eignina Suðurgata 100
Suðurgata 100
107 Reykjavík
201.3 m2
Einbýlishús
837
894 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Skoða eignina Langafit 18
Skoða eignina Langafit 18
Langafit 18
210 Garðabær
165.4 m2
Einbýlishús
412
513 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Sóleyjarimi 35
Bílskúr
Skoða eignina Sóleyjarimi 35
Sóleyjarimi 35
112 Reykjavík
210.7 m2
Raðhús
524
688 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin