Betri Stofan Fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lögg. fasteignasali kynna:
Logaland 10, glæsilegt og mikið endurnýjað 211,9 fm endaraðhús sem er staðsett á rólegum og skjólsælum stað í Fossvogsdalnum. Húsið er staðsett fyrir neðan götu og hægt að leggja fyrir framan það. Bílskúr fylgir eigninni og er hann staðsettur beint á móti húsi.
Eignin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, eldhús, hol, borðstofu/stofur. Útgengi út á svalir sem snúa til suðurs. Neðri hæð: 4 svefnherbergi, útgengt í skjólgóðan suðurgarð úr einu þeirra, geymsla, baðherbergi og þvottahús. Sérinngangur á neðri hæð að framan. Að auki er 24 fm bílskúr sem fylgir. Eign á góðum stað í Fossvogsdalnum. Fallegt útsýni yfir Fossvoginn og Kópavog. Vinsæl staðsetning, stutt í skóla, leikskóla, útvistarsvæði, hjóla og göngustíga og íþróttasvæði Víkings.Endurbætur á árunum 2020 - 2026: - Skipt um skólplagnir.
- Neysluvatnslagnir allar nýjar og settur forhitari.
- Dregið nýtt rafmagn að hluta og skipt um allar innstungur og rofa.
- Nýtt eldhús.
- Nýtt bað og gestaklósett.
- Ný gólfefni á allt hús (eikarparket og flísar).
- Nýjar hurðir í allt húsið.
- Nýtt gler í hluta af gluggum og gluggaviðgerðir.
- Skipt um þakrennu.
- Ný innrétting í þvottahúsi.
- Nýir skápar í anddyri.
- Skipt um loft að hluta á aðalhæð.
- Pallur í garð 2020.
Nánari lýsing:Komið inn í rúmgóða
forstofu, flísar á gólfum, rúmgóðir skápar.
Gestasnyrting við forstofu endurnýjuð í hólf og gólf.
Eldhús er með nýrri dökkbæsaðri eldhúsinnréttingu og borðkrók, steinn á borðum.
Holið er parketlagt og innaf því er sjónvarpskrókur. Frá holi er gengið upp nokkur þrep í rúmgóðar og bjartar
samliggjandi stofur, eikarparket er á gólfi, stórir gluggar og útsýni. Útgengi á skjólgóðar
suðursvalir.
Á neðri hæðinni eru
fjögur svefnherbergi,
hol,
baðherbergi,
geymsla og
þvottahús.
Þrjú svefnherbergi snúa til suðurs.
Hjónaherbergið er rúmgott með góðum skápum, og útgengi út í
suðurgarð. Við hlið þess er eitt minna svefnherbergi og annað með rúmgóðum skápum. Öll neðri hæðin er með eikarparketi á gólfum fyrir utan baðherbergi, þvottahús og geymslu. Norðan megin er rúmgott
svefnherbergi með eikarparketi á gólfi.
Baðherbergi endurnýjað í hólf og gólf. Flísar á veggjum og gólfi, vandaðar innréttingar, baðkar og sturta.
Þvottahús og
geymsla er við hliðina á forstofu við
neðri inngang hússins. Nýleg innrétting og skolvaskur, flísar á gólfum.
Bílskúr stendur fyrir ofan götu, rafmagnshurð, vatn. vaskur og niðurfall í gólfi.
Garðurinn sem snýr í suður er stór og er með endurnýjuðum palli.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.