LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 3ja–4ra herbergja íbúð á 4. hæð með aukinni lofthæð í nýlegu lyftuhúsi við Norðurbakka 9A í Hafnarfirði. Um er að ræða einstaklega vel skipulagða eign með tvennum svölum, fallegu sjávarútsýni og sérmerktu bílastæði í bílageymslu með rafhleðslustöð. Frábær staðsetning við höfnina þar sem stutt er í verslanir, veitingastaði, þjónustu og fallegar gönguleiðir. Sameiginlegar þaksvalir.
Birt stærð eignarinnar er 126,8 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er sérgeymsla á jarðhæð 9,5 fm.
Eignin skiptist í forstofu, stofu og borðstofu í opnu rými, eldhús, tvö til þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og sérgeymslu. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í bílageymslu með rafhleðslustöð ásamt hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT – Allar frekari upplýsingar veitir Þórey í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is
Nánari lýsing
Forstofa með góðum fataskápum, flísar á gólfi.
Gangur/hol, harðparket á gólfi.
Stofa og borðstofa í björtu og rúmgóðu alrými með gólfsíðum gluggum og útgengi á svalir með fallegu útsýni til sjávar, harðparket á gólfi.
Eldhús opið inn í stofurými með vandaðri HTH innréttingu og eldhúseyju, bakarofni, helluborði og viftu, harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með gólfsíðum gluggum, góðum fataskápum og harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi I með gólfsíðum gluggum, fataskáp og harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi II með gólfsíðum gluggum, útgengi á svalir og harðparketi á gólfi. Herbergið var áður hluti af alrýminu og auðvelt væri að opna það aftur.
Baðherbergi með vandaðri HTH innréttingu, upphengdu salerni, baðkari með sturtuaðstöðu og handklæðaofni, flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús með HTH innréttingu og skolvaski, flísar á gólfi.
Sérgeymsla á jarðhæð (9,5 fm).
Sérmerkt bílastæði í bílageymslu með rafhleðslustöð, merkt nr. 410.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Húsgjöld eignarinnar eru 35.046 kr. á mánuði og innifela almennan rekstur húsfélags, hita, rafmagn í sameign, þrif sameignar, húseigendatryggingu, framlag í framkvæmdasjóð og þjónustukaup vegna reksturs húsfélags.
Norðurbakki 7–9 er glæsilegt fjölbýlishús með nýtískulegri hönnun, teiknað af PK Arkitektum og byggt af VHE verktökum.
Sameign er afar snyrtileg og vel við haldin.
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.Allir kaupendur okkar fá
Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.