Mánudagur 9. mars
Fasteignaleitin
Skráð 27. feb. 2026

Þrastarlundur 1

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
245 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
249.500.000 kr.
Fermetraverð
1.018.367 kr./m2
Fasteignamat
177.550.000 kr.
Brunabótamat
105.150.000 kr.
GT
Guðmundur Th. Jónsson
Lögg. fasteiganasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2072546
Landnúmer
119671
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Nýtt gler og gluggar
Þak
Nýlegt þakjárn
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd til suðurs
Lóð
100
Upphitun
Gólfhitalagnir
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu 245,0 fermetra einbýlishús á einni hæð með innbyggðum 58,9 fermetra tvöföldum bílskúr á 1.020,0 fermetra frágenginni lóð á eftirsóttum stað við Þrastarlund í Garðabæ.
 
Húsið hefur allt verið endurnýjað að innan og utan á árunum 2017-2025.
-  Húsið einangrað upp á nýtt og klætt með áli.
-  Allt gler, gluggar og allar útihurðir endurnýjaðar.
-  Þakjárn og þakpappi endurnýjað. Þakkantur álklæddur að framan. Nýjar álrennur og niðurföll.
-  Lagnir fyrir skólp (út fyrir lóðarmörk), neysluvatn og rafmagn endurnýjaðar, forhitari fyrir neysluvatn, lagt gólfhitakerfi, skipt um inntök og töflur og grind endurnýjuð.
-  Free at Home hússtjórnarkerfi fyrir lýsingu, hitastýringu og heitan pott.
-  Öryggiskerfi frá Securitas.
-  Rafhleðslustöð við bílskúr.
-  Skipulagi hið innra breytt og byggð 42,0 fermetra viðbygging við húsið sem er að stórum hluta hjónasvíta með bað- og fataherbergi.
-  Öll loft klædd upp á nýtt, aukin einangrun og ný rakasperra. Sett innfelld lýsing auk þess sem loftræstikerfi var sett í viðbyggingu með möguleika á að tengja við restina af húsinu. Öll loft     og veggir heilsparslaðir.
-  Baðherbergi endurnýjuð.
-  Gestasnyrting endurnýjuð.
-  Eldhús endurnýjað.
-  Öll gólfefni, fataskápar og innihurðir endurnýjaðar.
-  Allar innréttingar, að meðtöldum fataskápum, auk innihurða eru íslensk sérsmíði.

 
Lýsing eignar:
Forstofa,
 flísalögð og með innbyggðum fataskápum.
Gestasnyrting, með glugga, flísalagt gólf og veggir að hluta. Vegghengt wc.
Hol, parketlagt.
Samliggjandi stofur, parketlagðar og bjartar með fallegri gluggasetningu, mikilli lofthæð, fallegum viðarklæddum vegg, innfelldri lýsingu í loft og útgengi um rennihurð á viðarverönd til suðurs.
Eldhús, opið við borðstofu, parketlagt og bjart með góðum gluggum, aukinni lofthæð og mjög fallegum sérsmíðuðum innréttingum sem eru bæði hvítar og úr dökkbæsaðri eik. Tvöfaldur ísskápur, innbyggð uppþvottavél í innréttingu og spanhelluborð með innbyggðum háfi aftan við.
Gangur, parketlagður og með innfelldri lýsingu í loftum.
Þvottaherbergi, með glugga, flísalagt gólf, góðar innréttingar með vinnuborði, vaski og stæði fyrir vélar í vinnuhæð.
Baðherbergi I, með glugga, flísalagt gólf og veggir, innrétting með kvartsteini á borðum, speglaskápar með innbyggðri lýsingu, vegghengt wc., baðkar og flísalögð stór sturta með sturtugleri.
Barnaherbergi I, parketlagt og rúmgott með fataskápum.
Barnaherbergi II, parketlagt og rúmgott með fataskápum. 
Barnaherbergi III, parketlagt og rúmgott með fataskápum á heilum vegg. 
Sjónvarpshol, parketlagt.
 
Viðbygging við húsið og er með loftræstikerfi í, skiptist þannig:
Hjónaherbergi, parketlagt og rúmgott með fataherbergi og baðherbergi inn af.
Fataherbergi, parketlagt og með fallegum sérsmíðuðum innréttingum.
Baðherbergi II, með glugga og göngudyrum út á viðarverönd með heitum potti. Flísalagt gólf og veggir að hluta, vaskborð úr kvartsteini, innbyggðir skápar í vegg og flísalögð sturta með innbyggðum Vola tækjum í vegg, sturtuhillu innbyggðri í vegg og sturtugleri.
Vinnuaðstaða, með veggfastri borðplötu sem nýtist í dag sem skrifstofa. Opin en stúkuð af með trérimlum.
Hol, þar sem innangengt er í bílskúr með góðum sérsmíðuðum skápum.
 
Bílskúr, sem innangengt er í af svefngangi um eldvarnarhurð, er tvöfaldur 58,9 fermetrar að stærð að meðtalinni geymslu og tækjarými sem eru inn af bílskúr. Epoxy á gólfum, nýjar bílskúrshurðir með nýjum mótorum og ný gönguhurð.
Geymsla, inn af bílskúr er með gluggum. Í geymslu er loftræstisamstæða.
Inntaksrými, inn af geymslu er með glugga.
 
Húsið að utan er í mjög góðu ástandi, allt nýlega klætt með áli frá Áltaki með innbrenndum lit. Þakjárn er nýlegt sem og einangrun húss að utan og einangrun þaks. Allt gler og gluggar og allar útihurðir eru nýlega endurnýjaðar.
 
Lóðin, sem er 1.020,0 fermetrar að stærð er fullfrágengin. Stór innkeyrsla með hitalögnum undir, hellulögð stétt meðfram innkeyrslu með hitalögnum undir, lokað kerfi með varmaskiptum. Stór viðarverönd með skjólveggjum og heitum potti, komnar undirstöður og lagnir fyrir geymsluskúr fyrir aftan verönd, tyrfð flöt og trjágróður. Stór hluti lóðarinnar er afgirtur með nýjum skjólvegg og þrefalt ruslatunnuskýli stendur á afgirtri hellulagðri verönd norðan við bílskúr.
 
Staðsetning eignarinnar er góð á rólegum og eftirsóttum stað við Þrastarlund í Garðabæ.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
14/10/201660.550.000 kr.61.900.000 kr.203 m2304.926 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1973
5.9 m2
Fasteignanúmer
2072546
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
17.100.000 kr.

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bæjarlind 7
Skoða eignina Bæjarlind 7
Bæjarlind 7
201 Kópavogur
229.4 m2
Fjölbýlishús
423
1090 þ.kr./m2
250.000.000 kr.
Skoða eignina Lyngheiði 5
Bílskúr
Skoða eignina Lyngheiði 5
Lyngheiði 5
800 Selfoss
184.5 m2
Einbýlishús
615
534 þ.kr./m2
98.500.000 kr.
Skoða eignina Hraunbraut 39 Borg grunnur og teikn
Hraunbraut 39 Borg grunnur og teikn
805 Selfoss
352.2 m2
Einbýlishús
825
80 þ.kr./m2
28.200.000 kr.
Skoða eignina Aflakór 18
Bílskúr
Skoða eignina Aflakór 18
Aflakór 18
203 Kópavogur
340.6 m2
Einbýlishús
836
793 þ.kr./m2
270.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin