Rúmgóð og vel staðsett 99,4 fm efri hæð. Íbúðin sem er þriggja herbergja skiptist í forstofu, stofu, gang, tvö herbergi, baðherbergi og eldhús. Tvær geymslur fylgja íbúðinni þ.e. á hæðinni og í kjallara, auk þess er sameiginlegt þvottaherbergi er í kjallara.
Samkvæmt HMS er birt stærð íbúðarinnar 99,4 fm þ.a. er geymsla á hæðinni (0203), 4,4 fm og geymsla í kjallara (0005), 12,8 fm.
Nánari lýsing: Komið er inn í sameiginlegan stigagang. Lítil parketlögð forstofa. Parketlögð stofa. Parketlagður gangur með fatahengi. Parketlagt herbergi með svaladyrum út á góðar suð-vestur svalir. Dúklagt herbergi með fataskáp, Baðherbergi með gólfdúk, þiljum með flísamunstri, baðkari, skáp og glugga. Eldhús með parketi, góðri eldhúsinnréttingu með eldavél og fylgir einnig ísskápur. Á hæðinni er lítil geymsla (4,4 fm) sem tilheyrir íbúðinni og í kjallara er stór geymsla sem tilheyri íbúðinni (12,8 fm). Einnig er í kjallara sameiginlegt þvottaherbergi og sameiginleg hitakomba, hiti fyrir íbúðina er á sér mæli)
Engar framkvæmdir samþykktar í húsfélaginu (ath þarf ástand þaks við svalir - sjánalegt ryð). Hússjóður er kr. 11.755,- á mánuði. Staða hússjóð u.þ.b. kr. 2.548.668,-
Kvöð / kvaðir
Eignaskiptayfirlýsing sjá skjal nr. B-025321/2003 Um eignarhlutföll o.fl. sjá eignarskiptayfirlýsingu Lóðarleigusamningur 411-U-007175/2011 Endurnýjun lóðarleigusamnings. Lóðin er 431,3 fm að stærð og leigð til 75 ára frá 1. janúar 2008 að telja. Á lóðinni er almenn kvöð um hvers konar lagnir Reykjavíkurborgar eða stofnana hennar. Lóðarleigusamningur sjá skjal nr. C-03381. 431,25 FM LEIGULÓÐ Lóðin er leigð til 75 ára frá 1. janúar 1933.
Rúmgóð og vel staðsett 99,4 fm efri hæð. Íbúðin sem er þriggja herbergja skiptist í forstofu, stofu, gang, tvö herbergi, baðherbergi og eldhús. Tvær geymslur fylgja íbúðinni þ.e. á hæðinni og í kjallara, auk þess er sameiginlegt þvottaherbergi er í kjallara.
Samkvæmt HMS er birt stærð íbúðarinnar 99,4 fm þ.a. er geymsla á hæðinni (0203), 4,4 fm og geymsla í kjallara (0005), 12,8 fm.
Nánari lýsing: Komið er inn í sameiginlegan stigagang. Lítil parketlögð forstofa. Parketlögð stofa. Parketlagður gangur með fatahengi. Parketlagt herbergi með svaladyrum út á góðar suð-vestur svalir. Dúklagt herbergi með fataskáp, Baðherbergi með gólfdúk, þiljum með flísamunstri, baðkari, skáp og glugga. Eldhús með parketi, góðri eldhúsinnréttingu með eldavél og fylgir einnig ísskápur. Á hæðinni er lítil geymsla (4,4 fm) sem tilheyrir íbúðinni og í kjallara er stór geymsla sem tilheyri íbúðinni (12,8 fm). Einnig er í kjallara sameiginlegt þvottaherbergi og sameiginleg hitakomba, hiti fyrir íbúðina er á sér mæli)
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.