Helgafell fasteignasala kynnir til sölu fimm herbergja útsýnisíbúð með bílskúr á efstu hæð við Dúfnahóla 4 í Reykjavík.
Íbúð: 116,7fm.
Bílskúr: 26,1fm.
Sér geymsla í sameign - er um 7fm. og er ekki inní fermetratölu íbúðarinnar.Nánari Lýsing:
Anddyri er með flísum á gólfi og fataskáp. Anddyrið er afmarkað með glerflísum.
Úr anddyri er komið í rúmgott
hol með eikarparket á gólfi.
Eldhús með eldri snyrtilegri innréttingu, flísar á milli efri og neðri skápa, pláss fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi og góður borðkrókur með mögnuðu útsýni. Opið á milli eldhúss og stofu.
Stofan er rúmgóð með eikarparket á gólfi, útgengt út á
nýlega yfirbyggðar svalir til vesturs með flísum á gólfi. Glæsilegt útsýni á svölunum.
Fjögur svefnherbergi með eikarparketi á gólfi, fataskápar í tveimur herbergjum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. "Walk-in" sturta og upphengt salerni. Pláss fyrir þvottavél á baðherbergi.
Um 7fm.
sér geymsla í sameign sem er ekki inní birtum fermetrum.
Bílskúr með nýlegri bílskúrshurð. Bílskúrinn er með steyptu gólfi.
Snyrtileg sameign, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Í sameign er líka sameiginlegt þvottahús.
Skjólsæll sameiginlegur garður er bakvið húsið með leiktækjum fyrir börn.Viðhald: - Nýlega búið að endurnýja rafmagn í sameign.
- Nýleg lyfta.
- Búið að skipta um glugga og gler í sameign og í íbúð.
- Nýlega viðgert þak.
- Hitalagnir í stétt.
- Endurbætur á lóð að ofanverðu.
- Nýlegar rafdrifnar útihurðir í sameign.
- Nýlegar svalalokanir.
Falleg útsýniseign sem bíður upp á mikla möguleika.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - sími 566 0000Rúnar Þór Árnason - lgf., email: runar@helgafellfasteignasala.is