Tungusíða 29 - Stórt og vel skipulagt 6 herbergja einbýli á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr í Síðuhverfi - stærð 267,5 m²
Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:
Efri hæð - 149,4 m²: Forstofa, hol/gangur, eldhús, sjónvarpsstofa, stofa, baðherbergi, svefnherbergi og hjónaherbergi með fataherbergi.
Neðri hæð - 76,3 m²: Forstofa, hol/gangur, baðherbergi, þvottahús og tvö svefnherbergi.
Bílskúr - 41,8 m² inn af bílskúr er rúmlega 30 m² óskráð geymsla
Tveir inngangar eru á austur hlið, einn á efri og annar á neðri, báðir með flísum á gólfi.
Eldhús hefur verið endurnýjað. Þar eru gráar flísar á gólfum og hvít sprautulökkuð innrétting með grárri bekkplötu. AEG helluborð, vifta, ofn og örbylgjuofn.
Stofa, hol og sjónvarpsstofa eru með parketi á gólfi. Loftin eru tekin upp í stofunni og þar er arin. Þessi þrjú rými er mjög opin og björt og tengist inn í eldhúsið. Úr holi er útgangur á nýlegan suð-vestur pall með potti og úti sturtu.
Hol og gangur á neðri hæð eru með flísum á gólfi.
Baðherbergin eru tvö. Baðherbergi á efri hæðinni er með harð parketi á gólfi og dökk máluðum flísum á hluta veggja, viðar innréttingu, vegghengdu wc, baðkari og opnanlegum glugga. Baðherbergi á neðri hæðinni var endurnýjað árið 2019. Þar eru flísar á gólfi og hluta veggja, hvít innrétting, vegghengt wc, handklæðaofn, sturta, opnanlegur gluggi og innfelld lýsing.
Svefnherbergin eru fjögur, öll eru með harðparketi á gólfi. Þrjú þeirra eru með fataskáp og eitt með fataherbergi.
Þvottahús er með lökkuðu gólfi, plastlagðri innréttingu og opnanlegum glugga.
Bílskúrinn er skráður 41,8 m² að stærð og er innangengt í hann. Gólf er lakkað. Innkeyrsluhurð er rafdrifin og við hliðina á henni er gönguhurð. Steypt bílaplan er framan við bílskúrinn.
Rúmlega 30 m² óskráð geymsla er inn af bílskúrnum, þar er mjög gott geymslurými og í einu horni hennar hefur verið útbúin lokuð geymsla/búr. Rýmið er nýtt í dag sem sjónvarpsherbergi.
Annað
- Húsið er staðsett nyrst í Tungusíðunni í botnlanga
- Búið er að taka inn ljósleiðara
- Nýr pallur með potti og útisturtu 2023
- Parket pússað og lakkað 2021
- Þak sprautað og lagfært 2021
- Loft sprautað hvítt 2021
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.