Miðvikudagur 12. mars
Fasteignaleitin
Opið hús:18. mars kl 17:00-17:30
Skráð 12. mars 2025
Deila eign
Deila

Skipasund 1

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
180.6 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
146.900.000 kr.
Fermetraverð
813.400 kr./m2
Fasteignamat
98.000.000 kr.
Brunabótamat
87.650.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1950
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2018118
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Sagt í lagi
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Endurnýjað 2018
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá! Opið hús - Skipasund 1 í Reykjavík - 18. mars klukkan 17:00 - 17:30

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar glæsilega, mikið endurnýjaða og vel skipulagða 180,6 fermetra sérhæð og ris með bílskúr við Skipasund 1 í Reykjavík. Eignin er nokkuð stærri að grunnfleti þar sem hluti rishæðar er undir súð. Um er að góða staðsetning þar sem fallegs útsýnis nýtur að Esjunni, Akrafjalli, Viðey, út á sundin og víðar. Gólfhiti er í öllu húsinu og falleg lóð með viðarveröndum, heitum potti og útisturtu.

Eignin er með fjórum rúmgóðum svefnherbergjum, tveimur stofum, tveimur baðherbergjum, holi, eldhúsi og rúmgóðu þvottaherbergi í kjallara. Stór 36,0 fermetra bílskúr með sérstæði fyrir framan með rafhleðslustöð. Lóðin er 733,5 fermetrar að stærð og virkilega falleg með tyrfðum flötum og gróðri. Tvennar viðarverandir fylgja eigninni og er heitur pottur og útisturta staðsett eins og fyrr greinir. Snjóbræðsla er undir stétt, í útitröppum við hús og stæði fyrir framan bílskúr. 

Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum. Má þar nefna að húsið var klætt og einangrað fyrir 15 árum síðan. Þakið var endurnýjað árið 2018 þar sem bætt var við kvistum á húsið. Búið er að skipta um alla glugga í kvistum og þvottahúsi ásamt því að skipt var um opnanleg fög í öllum öðrum gluggum. Skipt var um allar neysluvatnslagnir á neðri hæð og settur gólfhiti árið 2016. Tveimur árum síðar var skipt um allar neysluvatnslagnir í rishæð og komið fyrir gólfhita þar. Skipt var um varmaskipti fyrir bílaplan árið 2019 og árið 2023 var rafhleðslustöð sett upp við bílskúr.

Nánari lýsing:

Aðalhæð:
Forstofa: Með flísum á gólfi.
Hol: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Setustofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi og gluggum til suðurs og austurs. Setustofa er opn við borðstofu.
Borðstofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi og gluggum til suðurs og vesturs. 
Eldhús: Er virkilega sjarmerandi með flísum á gólfi og fallegri Alno eldhúsinnréttingu. Gluggar til vesturs og norðurs. Tveir stál ofnar, keramik helluborð, Samsung tvöfaldur kæliskápur og tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á mili skápa og lýsing undir efri skápum. 
Hjónaherbergi: Er rúmgott með harðparketi á gólfi og skápum á heilan vegg. Gluggar til norðurs og austurs.
Baðherbergi I: Var endurnýjað árið 2016 á fallegan máta. Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum, innrétting við vask, handklæðaofn og upphengt salerni. Gluggi til norðurs.

Rishæð: Gengið upp parketlagðan stiga upp í rishæð hússins.
Gangur: Með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi II: Er rúmgott (stórt) með harðparketi á gólfi og aukinni lofthæð. Gluggar til norðurs og vesturs. Afar glæsilegt útsýni út á sundin, að Akrafjalli, Esjunni, Viðey og víðar.
Geymsla/fataherbergi: Er staðsett inn af svefnherbergi I. Liggur undir súð og með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi. Hluti liggur undið súð en grunnflötur nýtist vel. Gluggi til  vesturs.
Svefnherbergi IV: Er rúmgott (stórt) með harðparketi á gólfi og aukinni lofthæð. Gluggar til suðurs.
Baðherbergi II: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og innbyggðum Axor blöndunartækjum. Innrétting við vask, handklæðaofn og upphengt salerni. Gluggi til austurs með fallegu útsýni til fjalla.

Bílskúr: Er stór, eða 36,0 fermetrar að stærð. Rafmagnsopnun á bílskúrshurð (frá 2018). Nýleg rafmagnstafla í bílskúr og búið er að endurnýja neysluvatns- og ofnalagnir (2-3 árum síðan). Rafmagnshleðslustöð við bílskúr (2023). Gluggar til norðurs. Stýring fyrir heitan pott og útisturtu er innan bílskúrs. Inngangshurð norðanmegin á bílskúr við verönd þar sem heitur pottur stendur. Hellulagt bílastæði fyrirframan bílskúr með snjóbræðslu.

Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað við Skipasund í Laugardalnum þaðan sem stutt er í skóla á öllum skólastigum, Íþróttasvæði Þróttar og Ármanns, Laugardalslaug, verslun og þjónustu og alla afþreyingu sem Laugardalurinn hefur upp á að bjóða. Stutt er í helstu stofnæðar frá hverfinu.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1979
36 m2
Fasteignanúmer
2018118
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
17.050.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skipasund 58
Skoða eignina Skipasund 58
Skipasund 58
104 Reykjavík
144.5 m2
Einbýlishús
313
947 þ.kr./m2
136.900.000 kr.
Skoða eignina Dugguvogur 13
Bílastæði
Skoða eignina Dugguvogur 13
Dugguvogur 13
104 Reykjavík
170.7 m2
Fjölbýlishús
423
849 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Drómundarvogur 2
Bílastæði
Drómundarvogur 2
104 Reykjavík
145.2 m2
Fjölbýlishús
322
1067 þ.kr./m2
155.000.000 kr.
Skoða eignina Trilluvogur 5 raðhús
Bílastæði
Trilluvogur 5 raðhús
104 Reykjavík
180.9 m2
Fjölbýlishús
635
812 þ.kr./m2
146.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin