Föstudagur 17. júlí
Fasteignaleitin
Skráð 17. júlí 2026

Klettsflöt 2

SumarhúsVesturland/Reykholt í Borgarfirði/Reykholt (Borgarfirði)-320
34.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
19.900.000 kr.
Fermetraverð
580.175 kr./m2
Brunabótamat
21.450.000 kr.
Byggt 1987
Pallur
Heitur pottur
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
21083973
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Tveir inngangar

Heimili fasteignasala og Sigríður Lind fasteignasali kynna til sölu fallegt og vel staðsett sumarhús við Klettsflöt 2 í landi Húsafells, Borgarbyggð. Birt stærð eignarinnar er 34,3 fm, en við bætist óskráð svefnloft að gólffleti 15 fm og nýtanlegir fermetrar því fleiri en birt stærð segir til um.  Húsið skiptist í eldhús, borð- og setustofu í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi og svefnloft ásamt rúmgóðum sólpalli með heitum potti. Húsið stendur á 1200 fm leigulóð. Notalegt afdrep í sveitinni steinsnar frá borginni.  Laus til afhendingar við kaupsamning. 

** Bókið skoðun HÉR **

Nánari lýsing: 

Stofa/borðstofa: er opið við eldhús, rúmgott og bjart rými með útgengi á skjólgóða timburverönd. 
Eldhús: Ágæt innrétting með góðu skápaplássi. Eldavél og vifta. Innbyggður ísskápur. 
Svefnherbergi: eru tvö, annað inn af hinu. Kojur í báðum herbergjum. Svefnaðstaða fyrir sex manns í núverandi skipulagi. 
Baðherbergi: sturtuaðstaða, nettur skápur með handlaug ofan á. Dúkur á gólfi. Opnanlegur gluggi. 
Anddyri: er nett með léttu fatahengi. 
Svefnloft: að svefnlofti er góður tréstigi. Gólfflötur um 15 fm, parketlagt. Opnanlegur gluggi. 
Sólpallur: við húsið er skjólgóð ca 57 fm timburverönd með heitum potti og rúmgóðu svæði fyrir matborð og grill. 

Húsið er hefðbundið heilsárssumarhús úr timbri. Undirstöður eru gólfbitar sem hvíla á steyptum sökkulsúlum. Í húsinu er hitaveita og forhitari. Ljósleiðari.  Húsið var stækkað 2016-17 um ca. 10 fm, þá voru raf- og vatnslagnir endurnýjaðar ásamt panelklæðningu innanhúss og lagt nýtt parket. Klettsflöt 2 er í skipulagðri frístundabyggð í landi Húsafells þar sem náttúran skartar sýnu fegursta innan um hraun, kjarr og jökla. Góð þjónusta er á svæðinu s.s þjónustumiðstöð, sundlaug og golfvöllur. Yfir vetrarmánuði er snjómokstur frá hóteli að Klettsflöt. 

Áætlaður rekstrarkostnaður á ári: 
Lóðarleiga: kr 362.689
Hiti og rafmagn: kr 190.182
Fasteignagjöld: kr 121.755 pr ár.
Brunatrygging: kr 23.779 pr ár.

Hér er um að ræða lítið og notalegt sumarhús í kjarrivöxnu landi Húsafells. Eignin er snyrtileg og hefur fengið gott viðhald. Frábær staðsetning í einungis klst akstursfjarlægð frá borginni.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir fasteignasali, sigridur.lind@heimili.is  s8994703.

 


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stórarjóður (Húsafell) 11
Stórarjóður (Húsafell) 11
320 Reykholt í Borgarfirði
43.3 m2
Sumarhús
32
621 þ.kr./m2
26.900.000 kr.
Skoða eignina Ölver 27
Skoða eignina Ölver 27
Ölver 27
301 Akranes
87.1 m2
Sumarhús
514
646 þ.kr./m2
56.300.000 kr.
Skoða eignina Hraunskógur 4
Skoða eignina Hraunskógur 4
Hraunskógur 4
320 Reykholt í Borgarfirði
125.9 m2
Sumarhús
524
523 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarimi 22
Á einni hæð
Skoða eignina Heiðarimi 22
Heiðarimi 22
805 Selfoss
44 m2
Sumarhús
12
Fasteignamat 27.850.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin