Hannes Steindórsson kynnir:
Vel skipulögð 3ja herbergja, 89 m² útsýnisíbúð á 3. hæð við Sóleyjarima 19 , með sérmerktu bílastæði í lokuðum bílakjallara, tengingu fyrir rafhleðslu og yfirbyggðum suðvestursvölum.
Íbúðin er í húsi fyrir einstaklinga 50 ára og eldri og er húsið vel rekið.Forstofa: Rúmgóð forstofa með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús: Eikarinnrétting með miklu hirsluplássi. Skúffur eru með skelluvörnum. Eldhúsveggur er flísalagður og granítborðplata.
Stofa og borðstofa: Bjartar og opnar stofur með útgengi út á yfirbyggðar suðvestur svalir með fallegu útsýni.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfum og fataskápum.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi, með sturtu, handklæðaofni og eikarinnréttingu með granítborðplötu.
Þvottahús: Sérþvottahús innan íbúðar, með flísum á gólfi, góðu skápaplássi og skolvaski.
Geymsla: Sér geymsla í sameign.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara.
Umhverfi og staðsetning: Sóleyjarimi 19 er í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Grafarvogi. Stutt er í fallegar gönguleiðir, leiksvæði og útivistarsvæði, auk þess sem skóli, leikskóli og helsta þjónusta eru í næsta nágrenni.
Í nágrenninu er meðal annars Spöngin með fjölbreyttri þjónustu, golfvöllur, kvikmyndahús, sundlaug og skemmtilegar gönguleiðir.