GARÐATORG EIGNAMIÐLUN KYNNIR: Glæsileg ný raðhús við Digranesheiði 45 A, B, C og D í Kópavogi. Húsin eru á tveimur hæðum, 123,6 fm auk bílskýlis, á fallegum útsýnisstað í Digranesi. Þrjú svefnherbergi, björt alrými, suðurgarður og svalir til suðvesturs.
Húsin verða afhent í janúar–febrúar 2027, fullbúin að innan og utan en án gólfefna, að undanskildum flísalögðum rýmum. Lóð skilast fullfrágengin.
Bókið skoðun hjá Unni í síma 8660507, unnur@gardatorg.is, eða Sigurði í síma 898 3708, sigurdur@gardatorg.is
Nánari lýsing eignanna:Neðri hæð:Forstofa með fataskáp. Geymsla og flísalögð gestasnyrting. Eldhús, stofa og borðstofa eru í björtu og opnu rými með gólfsíðum gluggum og útgengi í garð til suðurs.
Efri hæð:Þrjú svefnherbergi, öll með fataskápum. Úr hjónaherbergi er gengið út á svalir til suðvesturs. Baðherbergi er flísalagt, með baðkari, innréttingu og glugga. Sérþvottahús með innréttingu.
Gólfhiti er í húsunum.
Bílskýli og lóð:Bílskýli með snjóbræðslu og tengi fyrir rafhleðslu. Aukabílastæði á lóð. Hjóla- og vagnageymsla er við austurhlið bílskýlis.
Aðkoma og framlóð verða hellulögð með snjóbræðslu. Bakgarður snýr til suðurs og verður tyrfður. Lagnir fyrir heitan pott verða í garðinum.
Staðsetning:Húsin standa á fallegum útsýnisstað í grónu hverfi í Digranesi. Stutt er í Álfhólsskóla, íþróttahúsið Digranes, verslanir og alla almenna þjónustu.
Einstaklega falleg og vel skipulögð fjölskylduheimili með þremur svefnherbergjum, bílskýli og góðum útisvæðum á þessum vinsæla stað.
Húsin eru í byggingu. Uppgefnar stærðir eru samkvæmt fyrirliggjandi teikningum, með fyrirvara um endanlega skráningu í fasteignaskrá.
Nánari upplýsingar veita:Unnur Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 866 0507 eða unnur@gardatorg.is
Sigurður Tyrfingsson, löggiltur fasteignasali og húsasmíðameistari, s: 898 3708 eða sigurdur@gardatorg.isGarðatorg eignamiðlun er staðsett að Lyngási 11, Garðabæ.