SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FALLEG EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ VIÐ GOLFVÖLL* *STÓR GARÐUR* *EINKASUNDLAUG* *BÍLASTÆÐI Á LÓÐ* *ÞAKSVALIR* *FRÁBÆRT VERÐ*Glæsileg einbýli staðsett í Murcia héraði sem nýtur síaukinna vinsælda meðal þeirra sem vilja njóta sólríkra daga, stöðugs veðurfars og fjölbreyttrar afþreyingar. Staðsett við glæsilegan golfvöll Hacienda del Alamo Golf Resort sem hefur m.a. verið æfingabækistöð íslenska landsliðsins í golfi. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góður garður með einkasundlaug, þaksvalir og bílastæði innan lóðar.
Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is. S: 893 2495
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, S: +34 615 112 869Nánari lýsing:Gengið er inn forstofu og þaðan inn í opið rými sem sameinar góða stofu, borðstofu og eldhús. Þrjú svefnherbergi með innbyggðum skápum. Tvö baðherbergi með sturtu. Mjög góður 300 fm garður með einkasundlaug og bílastæði á lóð. 47 fm þaksvalir sem gefa mikla möguleika til samveru enda hægt að njóta sólar þar allan daginn allan ársins hring. Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Ca. 110 mín. akstur frá Alicante, 40 mín akstur frá nýja Corvera flugvellinum í Murcia, 30 mín akstur í fallega strandbæinn Puerto de Mazarrón og 45 mín akstur til Cartagena.
Verð miðað við gengi 1 EUR=145 ISK.
Frá 374.900 EUR (ISK. 54.400.00.000) + kostn.Falleg eign á frábæru verði!
Hagstæð fjármögnun í boði úr spænskum bönkum, sem auðveldar kaupin.
Spánareignir hafa selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar
http://www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13%.
Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, air con, golf, sér stæði,
Svæði: Costa Blanca, Hacienda del Alamo,