HÁKOT fasteignasala og Daníel Rúnar Elíasson löggiltur fasteignasali sími: 431-4045 / 899-4045 auglýsa:
* ÁSABRAUT 6 * RAÐHÚS á einni hæð (90,5 m²) ásamt bílskúr (35,1 m²) samtals 125,6 m² og 15 m² geymsluskúr á verönd.
Forstofa (flísar, skápur, skóskápur).
Hol (parket).
Stofa (parket, sjónvarp fylgir).
Eldhús (parket, viðarinnrétting (Ölur), aukaborð með skúffum, flísar á milli skápa, vifta, helluborð, ofn, uppþvottavél, ísskápur fylgja en örbylgjuofn fylgir ekki).
Herbergi 2 (parket, skápur, útgangur verönd).
Herbergi/geymsla (parket, ekki hurð, inngangur bílskúr).
Svefnherbergi (parket, fataskápar).
Baðherbergi (flísar, flísar á vegg, baðkar m/sturtu, hvít innrétting, handklæðaofn, hiti í gólfi).
Bílskúr (flísar, hiti, vatn, hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl fylgir, flekahurð m/opnara, geymsluloft yfir hluta bílskúrs, þvottahús í enda).
Þvottahús (flísar, innrétting, þvottavél og þurrkari fylgja, upphengt salerni, vaskskápur, rennihurð, innaf bílskúr), útgangur út á verönd).
Geymsluskúr á verönd (15 m², parket, hillur, rafmagn (innstunga frá húsi), einangraður loft og gólf og 3 hliðar).
Annað: Húsið er timburhús, klætt að utan með áli. Stór afgirt verönd (ca. 80 m²) í suður m/geymsluskúr. Varmaskiptir. Raftæki í eldhúsi AEG frá 2018.
Steypt innkeyrsla. Hellulögð gangstétt. Styrking á verönd fyrir heitan pott.
Falleg húseign, staðsett í enda bæjarins, við bæjarmörkin að Hvalfjarðarsveit, stutt í golfvöllinn og fallegt útsýni að Akrafjalli og til sveita frá baklóð.
Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá seljendum og úr opinberum gögnum.