Miðvikudagur 18. mars
Fasteignaleitin
Skráð 1. des. 2025

Eskiás 10 íb101

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
122 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
Verð
118.900.000 kr.
Fermetraverð
974.590 kr./m2
Fasteignamat
188.100.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Sérinng.
Fasteignanúmer
2512837
Landnúmer
231034
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan TORG kynnir í sölu:  NÝR ÁFANGI KOMINN Í SÖLU Eskiás 10. Bókið skoðun í síma 863-8813
Íbúð 101 er 4ra herbergja íbúð skráð 122 fm, með sérinngangi, fataherbergi, og verönd.
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús og stofu, 3 svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sérgeymsla er innan íbúðarinnar og sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign. Íbúðirnar afhendast fullfrágengnar án gólfefna, en votrými er flísalagt.  Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir , fasteignasali í GSM: 863-8813, eða elka@fstorg.is


Sækja söluyfirlit HÉR

Nánari upplýsingar: Um er að ræða nýbyggingu að Eskiás 10 í Garðabæ. Skilalýsing seljanda gildir en í henni kemur meðal annars fram: Íbúðirnar afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum, án gólfefna, en votrými eru flísalögð. Svalir eru út frá stofu íbúða á efri hæðum.  Sérafnotasvæði er út af stofu með íbúðum á jarðhæð.
Bílastæði eru á lóð og gert er ráð fyrir nokkrum fjölda hleðslustæða. Allar íbúðir með aðgengi að inngarðinum sem býr til skjólsælan reit fyrir íbúa Eskiás. Íbúðirnar eru hannaðar til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra innan íbúða. Viðhaldslítil klæðning á húsum og lágmarkssameign tryggir hagkvæman rekstur íbúða. Eskiásinn er í miðju grónu hverfi með alla þjónustu í næsta nágreinni. Skólar, verslun og þjónusta eru allt í kring auk þess sem Garðabær hyggst byggja nýjan leikskóla á Lyngási fyrir neðan Eskiás.

Sjá nánari upplýsingar á Heimasíðu verkefnis: ESKIAS.IS

Innréttingar og hurðir: Innréttingar í eldhúsi verða af vandaðri gerð frá NOBILIA og fataskápar frá Trésmiðju GKS. Innihurðir verða hvítlakkaðar yfirfelldar hurðir (Jeld-Wen Moralt).
Baðherbergi/þvottahús: Baðherbergi/þvottahús eru forframleidd og hífð inn í hús samhliða uppsteypu húsanna. Söluaðili baðherbergjanna er Wilbergs/Bitter ehf. (Parki) og eru þau hönnuð af Boxen samkvæmt norskum stöðlum. Mikið er lagt upp úr vönduðum frágang og er allt efni og búnaður af þekktri og viðurkenndri gerð.
Heimilistæki: Eldhús skilast með blástursofni, spanhelluborði og innbyggðum ísskáp frá Whirlpool sem þjónustað er af Heimilistækjum. Vifta með kolasíu er í efri skápum yfir helluborði en þar sem að helluborð er staðsett á eyju eða tanga er einungis gert ráð fyrir möguleika á að bæta við viftu.
Hreinlætistæki: Öll hreinlætistæki eru að vandaðri gerð frá Grohe. Á baðherbergjum eru tækin krómlituð en í eldhúsi eru vaskur og blöndunartæki svört 
Gólfefni: Íbúðum verður skilað með flotuðum gólfum án gólfefna nema á baðherbergjum/þvottahúsi þar sem að veggir og gólf eru flísalögð upp í loft.  
Slökkvitæki og reykskynjari fylgja hverri íbúð. Dyrabjalla og póstkassi er við hvern sérinngang.
Frágangur utanhúss: Útveggir verða einangraðir að utan og klæddir með svartri álbáru, kopargrænum sléttum plötum (Alpolic FR 4mm) og jarðlituðum sementsplötum (Equitone). Allt klæðningarefni og undirkerfi klæðninga kemur frá Málmtækni. Svalahandrið eru úr stáli klætt lóðréttum bambus renningum. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum.
Frágangur lóðar: Lóð verður skilað fullfrágenginni. Megin göngustígar verða ýmist hellulagðir eða steyptir og grassvæði þökulögð. Leiksvæði. 
Rafbílahleðsla: Gert verður sérstaklega ráð fyrir fjölda rafhleðslustæða og möguleikum til að auka fjölda þeirra þegar þörf krefur.
Afhending íbúðanna: Gert er ráð fyrir að eignirnar verði afhentar í apríl/maí 2026
Kaupendur greiða skipulagsgjald þ.e 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt. 
Ath. innimyndir eru tölvuteiknaðar og eru til glöggvunar en sýna ekki endanlegan frágang eignarinnar, nánar um skil sjá skilalýsingu seljanda. 
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (14)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Holtsvegur 23
Opið hús:18. mars kl 17:30-18:00
Skoða eignina Holtsvegur 23
Holtsvegur 23
210 Garðabær
77.1 m2
Fjölbýlishús
312
881 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 24 - Íb. 102
Bílastæði
Opið hús:21. mars kl 13:00-13:30
Áshamar 24 - Íb. 102
221 Hafnarfjörður
82.2 m2
Fjölbýlishús
312
839 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Skoða eignina Tjarnabakki 2
Opið hús:18. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Tjarnabakki 2
Tjarnabakki 2
260 Reykjanesbær
71.6 m2
Fjölbýlishús
312
725 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Dísardalur 6C - 0103
Dísardalur 6C - 0103
260 Reykjanesbær
63.1 m2
Fjölbýlishús
211
800 þ.kr./m2
50.480.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin