Þriðjudagur 29. september
Fasteignaleitin
Skráð 29. sept. 2026

Kaplahraun 10

Nýbygging • RaðhúsSuðurland/Hveragerði-810
132.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
640.271 kr./m2
Fasteignanúmer
25378511
Húsgerð
Raðhús

MIÐBÆR FASTEIGNASALA KYNNIR:
Nýtt vel skipulagt 132.6 fm. fjögurra herbergja raðhús með þrjú svefnherbergi, opið alrými sem telur eldhús, stofu og borðstofu. Sérinngangur, þvotta/baðherbergi og innbyggður bílskúr. Gólfhiti er á allri eigninni. Íbúðirnar eru loftræstar með sjálfstæðu loftskiptakerfi

Húsið er timburhús,báruklætt en brotið upp með standandi álklæðningu.Útihurðar og gluggar eru svartir ál/tré Sorptunnugeymsla fyrir fjórar tunnur. Innréttingar eru ljósar frá VOKÉ III.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands, þá er íbúðin 105,7 fm. og bílskúrinn 26,9 fm. Samtals stærð er 132,6 m²
Anddyri er með flísum á gólfi og fataskáp. Frá anddyri er komið inn í alrými með parket á gólfi.
Opið alrými inniheldur stofu, borðstofu og eldhús. Eldhús með ljósri innréttingu. Gott skápa, skúffu og vinnupláss. Spanhelluborð með innbyggðum háf, bökunarofn í vinnuhæð. Innbyggður ísskápur.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með fataskápum og parketi á gólfi.
Herbergi II er einnig mjög rúmgott með fataskáp og parket á gólfi. 
Herbergi II er einnig mjög rúmgott með fataskáp og parket á gólfi. 
Baðherbergi með er með "walk inn" sturtu, sturtugleri ásamt handklæðaofni. Upphengt salerni og baðinnrétting með skúffum og handlaug. Baðherbergið er flísalagt, gólf og svo veggir að hluta. Þvottaaðstaða á baðherbergi.
Frá anddyri er innangengt inn í rúmgóðan bílskúr með rafdrifinni innkeyrsluhurð. Möguleiki að hafa innréttingu fyrir þvottavél og þurkara. 
Lóðin er fullbúin, hellulagt bílaplan með hitalögnum (ótengdum við grind). Skjólveggur að austanverðu og baklóðin er tyrfð, sérafnotaréttur íbúðar.

Gólfhiti er í öllum rýmum, með fullfrágengnum gólfhitakistum og uppsettum hitastillum (thermostötum) fyrir hvert íverurými, frá Danfoss.
Íbúðirnar eru loftræstar með sjálfstæðu loftskiptakerfi frá norska framleiðandanum Flexit. Kerfið blæs fersku lofti inn í íverurými og dregur loft út frá baðherbergjum, þvottahúsi og eldhúsi. Varmi úr útsogi er endurheimtur með varmaendurvinnslu og fluttur yfir í innblásið ferskt loft, án þess að loftið blandist.
Afhending við kaupsamning.


Nánari upplýsingar veita Kristbjörn Sigurðsson Lgf s. 6923000 email ks@midbaer.is og Sigfús Aðalsteinsson Lgf, s. 898-9979 eða email sigfusr@midbaer.is.
Miðbær fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002.
Vill Miðbær fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar, almennt á bilinu kr. 50.000 - 75.000.  Nánar um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu kr. 89.900
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Miðbær fasteignasala
www.midbaer.is

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grænaborg 2J
Efsta hæð
Skoða eignina Grænaborg 2J
Grænaborg 2J
190 Vogar
137.8 m2
Fjölbýlishús
413
580 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Grænaborg 2F
Efsta hæð
Skoða eignina Grænaborg 2F
Grænaborg 2F
190 Vogar
130.2 m2
Fjölbýlishús
312
614 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 5 íb. 504
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:30. sept. kl 16:30-17:30
Ásvellir 5 íb. 504
221 Hafnarfjörður
108.2 m2
Fjölbýlishús
312
1043 þ.kr./m2
112.900.000 kr.
Skoða eignina Bríetartún 11
Skoða eignina Bríetartún 11
Bríetartún 11
105 Reykjavík
130.7 m2
Fjölbýlishús
423
956 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin