LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna: Gauksmýri 6, Neskaupstað, Fjarðabyggð Um er að ræða mikið endurnýjað einbýlishús á einni hæð. Aðgengi að eigninni er gott og stórt bílastæði við útidyrnar. 2 skjólsælir og sólríkir sólpallar og sléttur og gróinn garður. Rúmgóð forstofa, stórt flísalagt baðherbergi með góðri sturtu og rúmgott þvottahús með dyrum út á timburpall með heitum potti. Gólfhiti er í forstofu og á baðherbergi. Búr með hillum. Flísar á gólfi. Lagnir fyrir salerni undir flísum. Stór stofa með dyrum út á góðan sólpall er samliggjandi eldhúsinu. Eldhúsið er með góðri innréttingu og eyju. 3 rúmgóð svefnherbergi eru í húsinu en voru áður 4 og væri hægt að færa aftur í fyrra horf. Parket er á gólfum í stofu, eldhúsi, herbergjum (nýlegt vinyl parket á stofu, eldhúsi og hjónaherbergi) en flísar á forstofu, búri, baðherbergi og þvottahúsi. Geymsluloft er yfir húsinu. Heitur pottur á sólpalli fylgir. Raflögn fyrir rafhleðslustöð. Stöðin fylgir ekki. Rafmagnstafla var nýlega endurnýjuð. Geymsluskúr í garði fylgir. Húsið er nýlega málað að utan af fagmanni og þakið var málað í september 2025. Flaggstöng í garði fylgir. Um er að ræða þægilega og fallega eign. Gerð snjóflóðavarnargarða fyrir ofan húsið miðar vel.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.