Til sölu er lóð 39 B á Víðum í Stafafellsfjöllum, rétt austan við Jökulsá í Lóni. Lóðin er staðsett á vinsælu útivistarsvæði í Lónssveit í um 30 km. austan við Höfn.
ATH. EINNIG ER TIL SÖLU SAMLIGGJANDI LÓÐ, STAFAFELLSFJÖLL 39C. SAMTALS ER LÓÐIRNAR 6328,7 FM.
LÓNSVEIT er af mörgum talinn einn fegursti staður landsins.
Litrík Líparítfjöllin allt um kring, góðar og fjölbreyttar gönguleiðir, m.a. í Kollumúla. Kjarrivaxnar hlíðar og stórkostlegar jarðmyndanir á svæðinu.
Stutt frá lóðinni eru fallegt gil, Hvannagil og snoturt lítið stöðuvatn, Vötnin, umkringt litskrúðugum fjöllum. Á lóðinni, sem er um 3234,8 fm. samkvæmt deiliskipulaginu, er töluvert birkikjarr.
Nánar um skipulag í Stafafellsfjöllum. Á skipulagssvæðinu eru skilgreindar 78 lóðir undir frístundarhús. Á hverri lóð er heimilt að byggja allt að 3 hús, sem fer þó eftir stærð lóða. Frístundarhús/aðalhús má vera allt að 120 fm. og ekki minni en 30 fm. Aukahús/gestahús getur verið allt að 30 fm. þó ekki stærra en helmingur af stærð aðalhúss. Geymsla getur verið allt að 25 fm. Á lóðum sem eru 6000 fm og stærri er leyfilegt byggingarmagn allt að 180 fm. en á minni lóðum takmarkast það við nýtingarhlutfallið 0,03. Vatnsöflun á svæðinu er á ábyrgð hvers lóðareiganda.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.