Sunnudagur 12. júlí
Fasteignaleitin
Skráð 27. júní 2026

Árkvörn 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
76.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
67.900.000 kr.
Fermetraverð
886.423 kr./m2
Brunabótamat
44.750.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
20440731
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur


Borg fasteignasala og María Mjöll kynna bjarta 3ja herbergja íbúð við Árkvörn 2 - 76,6 m2.
Vel skipulögð og björt íbúð á efri hæð með sérinngangi af svölum, sem gefur eigninni skemmtilegan sérbýlisblæ. Íbúðin nýtur aukinnar lofthæðar í stofu- og eldhúsrými, sem gerir alrýmið einstaklega bjart og opið. Stórir gluggar á fleiri en eina hlið hleypa inn góðri birtu. Eignin skiptist í tvö rúmgóð svefnherbergi, opið eldhús og stofu, baðherbergi, sér þvottahús innan íbúðar og svalir. Leikskólar og skóli eru í næsta nágrenni auk annarrar þjónustu sem gerir staðsetninguna sérstaklega fjölskylduvæna.

Nánari lýsing:

Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús er opið inn í stofurými með hvítri innréttingu, góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu. Rýmið tengist borðstofu á náttúrulegan hátt og nýtur aukinnar lofthæðar sem eykur birtu.
Stofa og borðstofa mynda alrými með aukinni lofthæð, hallandi lofti og stórum gluggum á fleiri en eina hlið. Úr stofu er útgengt út á svalir, útsýni yfir gróið umhverfi og til fjalla.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi.
Barnaherbergi er bjart og rúmgott með gluggum á tvo vegu sem gefa herberginu góða birtu.
Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi. Þar er baðkar með sturtuaðstöðu,vaskainnrétting, speglaskápur og opnanlegur gluggi.
Rúmgóð geymsla er innan íbúðar með hillum sem nýtist sem þvottahús, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sameiginleg geymsla í sameign.

Annað:
- Þak var yfirfarið og tekið í gegn sumarið 2024 (viðhaldsframkvæmdir)
- Hús málað að utan + gluggar og útidyrahurðir 2025
- Árið 2025 var farið í viðgerðir og viðhald á tveimur gluggum og öðrum skipt út. þetta hefur verið gert jafn óðum þegar þörf er á en ekki farið í einhverjar allsherjar framkvæmdir.

Ártúnshverfi er fjölskylduvænt hverfi þar sem öll helsta þjónusta er í þægilegu göngufæri. Leikskólar og skóli er í næsta nágrenni og stutt er í skóla, fallegt útivistarsvæði Elliðaárdals og samgöngur. 

Nánari upplýsingar veitir María Mjöll Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8663934 eða maria@fastborg.is


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.



 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Buðlabryggja 31, íb. 206 Hlutd.lán
Bílastæði
Buðlabryggja 31, íb. 206 Hlutd.lán
110 Reykjavík
80.5 m2
Fjölbýlishús
312
862 þ.kr./m2
69.400.000 kr.
Skoða eignina Hraunbær 134
Skoða eignina Hraunbær 134
Hraunbær 134
110 Reykjavík
86.4 m2
Fjölbýlishús
514
751 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 7
Bílastæði
Opið hús:14. júlí kl 16:00-16:30
Skoða eignina Bolholt 7
Bolholt 7
105 Reykjavík
68.2 m2
Fjölbýlishús
211
1114 þ.kr./m2
76.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 7
Bílastæði
Opið hús:14. júlí kl 16:00-16:30
Skoða eignina Bolholt 7
Bolholt 7
105 Reykjavík
60.3 m2
Fjölbýlishús
211
1211 þ.kr./m2
73.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin