Þingasel 9, 109 Reykjavík sem er fallegt og vel skipulagt 5 svefnherbergja einbýlishús með auka íbúð. Eignin er á vinsælum stað í Seljahverfi og er innst inn í botnlanga og stendur hátt þannig að útsýnið er mjög gott. Birt heildarstærð eignarinnar er 289,8 fm, plús ca 40 fm óskráðir fermetrar á 1.hæð. Þannig heildar stærð eignarinar er ca 330 fm.
Skipting eignar:
Efri hæð: Eldhús, borðstofa, stofa, arinn, svalir, sjónvarpshorn, hjónaherbergimeð fataherbergi, tvö svefnherbergi, baðherbergi, hol, þvottahús og búr.
Neðri hæð: Stór forstofa, mjög stórt svefnherbergi, snyrting, bílskúr og hol. Aukaíbúð á neðri hæð með sérinngangi með forstofu, eldhúsi, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og góðri geymslu.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa: Er rúmgóð og með flísar á gólfi. Innangengt er í bílskúr frá forstofu.
Hol: Rúmgott hol með fataskáp þar er einnig góður timburstigi upp á 2.hæð. Inn af holinu er stórt svefnherbergi.
Svefnherbergi: Skiptist upp í tvö stór opin rými og er annað þeirra nýtt sem geymsla í dag. Inn Af herbergi er snyrting.
Bílskúr: Er rúmgóður með rafdrifinni bílskúrshurð og lakkað gólf. Innangengt er frá anddyri um eldvarnarhurð.
Auka íbúð: Er með sérinngangi, forstofu, eldhúsi, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Frábær eign til útleigu eða til að sameina aftur.
Efri hæð:
Hol: Komið er upp í góðan gang og hol þar sem er útgengt á stóran suðurpall.
Eldhús: Er með mjög bjart og með góðum gluggum. Innrétting er endurnýjuð að hluta, tengi fyrir uppþvottavél og góður borðkrókur.
Stofa/borðstofa: Stór og björt stofa með glæsilegu útsýni. Léttur veggur skilur að gang og stofu af og er lítið mál að opna rýmið frekar.
Sjónvarpshol: Glæsilegur arinn er í sjónvarpsholi. Einnig er útgengt á góðar austursvalir sem liggja svo út í garð.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með einstaklega góðum sérsmíðuðum skápum.
Tvö svefnherbergi: Annað þeirra er nýtt sem svefnherbergi og með útgengt á suðurverönd en hitt er nýtt sem skrifstofa. Bæði herbergin eru mjög rúmgóð.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi, falleg hvít innrétting með tveimur handlaugum, stór walk-in sturta með glerskilrúmi og upphengdu salerni. Baðherbergi var endurnýjað 2016.
Þvottahús: Þvottahúsið er inn af eldhúsi. Nokkuð rúmgott með góðum glugga. Inn af þvottahúsi er búr.
Bílaplan: Gott hellulagt bílaplan fyrir framan bílskúr með upphituðu plani.
Garður: Umhverfis húsið er stór og fallegur garður eða í heild 859 fm lóð með grasflötum og trjágróðri. Fallegur sólpallur er sunnan megin við húsið og geymsluskúr.
Fallegur garður með fallegum gróðri sem hefur fengið góða umhirðu.
Húsið er staðsett í kyrrlátri og snyrtilegri götu miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Í göngufæri er fallegt útvistarsvæði og Íþróttasvæði ÍR og stutt er í grunn- og leikskóla í hverfinu. Þá er stutt í alla verslun og þjónustu.