Laugardagur 31. janúar
Opið hús:02. feb. kl 17:30-18:00
Skráð 28. jan. 2026

Sandavað 9

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
102 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.900.000 kr.
Fermetraverð
812.745 kr./m2
Fasteignamat
76.700.000 kr.
Brunabótamat
63.020.000 kr.
SS
Sunna Sigurjónsdóttir
Lögfræðingur og löggiltur fasteignasali
Byggt 2005
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
2273284
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegir
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegir
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Lítil rakaskemmd eftir leka að utanverðu. Málið er húsfélagsmál og er nú þegar komið í vinnslu og mun seljandi greiða tilheyrandi kostnað verði hann ekki greiddur úr hússjóði.
Fasteignasalan TORG kynnir í einkasölu: Fallega og bjarta þriggja herbergja endaíbúð með stæði í bílageymslu í Sandavaði 9, 110 Reykjavík. Eignin er samtals 102 fm, vel skipulögð og telur tvö svefnherbergi, stofu og eldhús í björtu opnu alrými, baðherbergi, þvottaherbergi, geymslu, stæði í bílageymslu og sameiginlega hjóla- og vagnageymslu. Rúmgóðar svalir til suð-vesturs.  Athuga ber að skipt hefur verið um gólfefni á alrými eftir að myndir voru teknar. Nýtt Quick step harðparket frá Harðviðarvali var lagt á sumarið 2025.

*EIGNIN GETUR VERIÐ LAUS VIÐ KAUPSAMNING*
*SELJANDI SKOÐAR SKIPTI Á SÉRBÝLI Í 110, 113 OG 270*

Nánari upplýsingar veitir Sunna Sigurjónsdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 845-0517, tölvupóstur sunna@fstorg.is.

Nánari lýsing:
Forstofa: 
Snyrtileg forstofa með opnanlegum glugga, rúmgóður fataskápur sem nær upp í loft og flísar á gólfi.
Svefnherbergi I: Rúmgott með fataskáp sem nær upp í loft. Nýlegt og fallegt viðarlitað Quick step harðparket á gólfi.
Eldhús: Vel skipulagt U-laga eldhús með eikarinnréttingu, flísar á milli efri og neðri skápa. Nýlegt og fallegt viðarlitað Quick step harðparket á gólfi.Skipt hefur verið um front á ruslaskáp frá því að myndir voru teknar. 
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð með nýlegu og fallegu viðarlituðu Quick step harðparketi á gólfi. Stórir gluggar og útgengt á rúmgóðar svalir til suð-vesturs. 
Svefnherbergi II: Rúmgott með fataskáp sem nær upp í loft. Nýlegt og fallegt viðarlitað Quick step harðparketi á gólfi.
Þvottaherbergi: Hvít innrétting, vinnuvaskur, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtileg viðarinnrétting, baðkar, handklæðaofn og uppengt WC. Flísar í hólf og gólf. 
Geymsla: Sér 7,6 fm geymsla í sameign og inn af bílastæði. Geymslan er inni í fm tölu eignarinnar. 
Sameign: Sameign er öll sú snyrtilegasta. Lyfta og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Björt og falleg eign á vinsælum stað í Norðlingaholtinu þar sem stutt er í leik- og grunnskóla og helstu þjónustu. Fallegar nátturúperlur eins og t.d. Heiðmörk, Elliðavatn og Rauðavatn eru í göngufæri.  

Vakin er athygli á að eigandi fasteignarinnar fellur undir lagaákvæði er snýr að tengslum við fasteignasala skv. 1. mgr. 14. gr. laga nr. 70/2015, lög um sölu fasteigna og skipa.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
10/02/202468.700.000 kr.68.000.000 kr.102 m2666.666 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2005
Fasteignanúmer
2273284
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
6
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.870.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skógarás 17
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Skógarás 17
Skógarás 17
110 Reykjavík
116.8 m2
Fjölbýlishús
31
676 þ.kr./m2
79.000.000 kr.
Skoða eignina Selásbraut 108 íbúð 402
Opið hús:01. feb. kl 12:00-12:30
Selásbraut 108 íbúð 402
110 Reykjavík
87 m2
Fjölbýlishús
312
953 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Selásbraut 98 íbúð 106
Opið hús:01. feb. kl 12:00-12:30
Selásbraut 98 íbúð 106
110 Reykjavík
97.8 m2
Fjölbýlishús
312
889 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Selásbraut 108 íbúð 205
Opið hús:01. feb. kl 12:00-12:30
Selásbraut 108 íbúð 205
110 Reykjavík
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
929 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin