Föstudagur 30. október
Fasteignaleitin
Skráð 30. okt. 2026

Norðurbrú 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
102.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
922.255 kr./m2
Brunabótamat
61.010.000 kr.
Byggt 2004
Jarðhæð
Pallur
Hleðslustöð
Fasteignanúmer
226719010
Húsgerð
Fjölbýlishús

BORG fasteignasala kynnir: Fallega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð á 1. hæð að Norðurbrú 2 í Sjálandshverfi í Garðabæ. Eignin er samtals 102,9 fm, þar af 96,1 fm íbúð og 6,8 fm sérgeymsla. Útfrá stofu er stór og skjólgóður suðurpallur og stæði í bílageymslu fylgir eigninni. Um er að ræða lítið og snyrtilegt fjölbýlishús og góð bílastæðaaðstaða er við húsið með nægum bílastæðum fyrir íbúa og gesti.

Sjá myndband af eigninni. 
Sækja söluyfirlit og skrá sig á opið hús


Íbúðin hefur fengið töluverða endurnýjun frá árinu 2023, meðal annars nýtt eldhús, endurnýjaðar innréttingar á baðherbergi og í þvottahúsi, auk þess sem íbúðin hefur verið máluð og ýmsar aðrar endurbætur gerðar.
Komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp. Inn af forstofu er sérþvottahús með innréttingu, vaski og góðri vinnuaðstöðu.

Eldhús, borðstofa og stofa mynda einstaklega rúmgott og bjart alrými. Eldhúsið var endurnýjað árið 2023 með fallegri innréttingu, höldum frá Innval og steinborðplötum frá S. Helgasyni. Eldhúsinu var jafnframt breytt og útbúin stór eyja sem tengir eldhús og stofurými vel saman. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja eigninni.
Úr stofu er gengið út á stóran og skjólgóðan suðurpall sem var endurnýjaður árið 2025, grindverk klætt að innan og pallurinn lakkaður í ágúst 2026. Pallasvæðið skapar einstaklega gott útirými við íbúðina.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi. Barnaherbergi er einnig með fataskáp og parketi. Sérsniðnar rúllugardínur eru í gluggum íbúðarinnar.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar hefur verið sett ný innrétting, vaskur og blöndunartæki, endurnýjað gler við baðkar og endunýjuð blöndunartæki í sturtu.
Sérgeymsla í kjallara er 6,8 fm og þar er jafnframt sameiginleg vagna- og hjólageymsla. Stæði í bílageymslu fylgir eigninni. Hleðslustöðvar eru í bílageymslu sem íbúar geta leigt aðgang að.
Húsfélagið hefur nýlega endurnýjað dyrasímakerfi og komið fyrir myndsíma. Rafmagnsopnun er á sameiginlegum inngangi og hurð að bílakjallara og sami lykill gengur að sameiginlegum dyrum hússins. Þrif sameignar, garðaþjónusta og snjómokstur eru í aðkeyptri þjónustu.

Endurbætur frá 2023:
Endurnýjuð eldhúsinnrétting og steinborðplötur ásamt eldhúseyju.
Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Innrétting, vaskur og blöndunartæki í þvottahúsi.
Baðinnrétting, vaskur og blöndunartæki.
Baðkarsgler og blöndunartæki í sturtu.
Íbúðin máluð.
Sérsniðnar rúllugardínur.
Tvö gler endurnýjuð, 2025 og 2026.
Svalahurð.
Pallur endurnýjaður 2025 og lakkaður 2026.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Úlfar Þór Davíðsson, löggiltur fasteignasali, í síma 788 9030, ulfar@fastborg.is


 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Urriðaholtsstræti 30
Hleðslustöð
Opið hús:05. nóv. kl 17:30-18:00
Urriðaholtsstræti 30
210 Garðabær
89,9 m2
Fjölbýlishús
312
922 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Arnarás 3
Skoða eignina Arnarás 3
Arnarás 3
210 Garðabær
90,3 m2
Fjölbýlishús
312
852 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 26 íb. 205
Bílastæði
Opið hús:03. nóv. kl 16:30-17:00
Áshamar 26 íb. 205
221 Hafnarfjörður
107,5 m2
Fjölbýlishús
423
749 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 26 íb. 204
Bílastæði
Opið hús:03. nóv. kl 16:30-17:00
Áshamar 26 íb. 204
221 Hafnarfjörður
82,9 m2
Fjölbýlishús
312
832 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin