Mánudagur 31. ágúst
Fasteignaleitin
Opið hús:03. sept. kl 17:30-18:00
Skráð 30. ágúst 2026

Stíflusel 10

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
86.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
Verð
63.900.000 kr.
Fermetraverð
738.728 kr./m2
Brunabótamat
45.850.000 kr.
Byggt 1977
Jarðhæð
Pallur
Fasteignanúmer
20548172
Húsgerð
Fjölbýlishús

Einar S. Valdimarsson, löggiltur fasteignasali, og EV fasteignasala slf. kynna vel skipulagða og bjarta 86,5 fm þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með stórum suðurpalli. Um er að ræða notalega eign með góðu skipulagi þar sem útisvæðið nýtist einstaklega vel.

Húsið hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum, meðal annars var farið í múrviðgerðir og húsið málað, auk þess sem skipt var um þá glugga sem þurfti. Skipt var um þak 2023. Sameign og stigagangur eru snyrtileg og vel umgengin.
Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og sérgeymslu í sameign. Frábær staðsetning í Seljahverfi þar sem leik- og grunnskóli eru í göngufæri, ásamt fjölbreyttri þjónustu og íþróttasvæði.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er heildarstærð eignarinnar 86,5 fm, þar af er íbúðin 74,2 fm og sérgeymsla í sameign 12,3 fm.

Nánari lýsing:
Forstofa:
Harðparket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Baðherbergi með baðkari með sturtu, baðinnréttingu með góðu skápaplássi, vaski og spegli.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með útgengi út á rúmgóðan pall til suðurs. Harðparket á gólfi.
Eldhús:  Innrétting með góðu skápaplássi og tengi fyrir þvottavél. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi I: Rúmgott herbergi með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi II: Harðparket á gólfi og fataskápur.
Sérgeymsla: 12,3 fm sérgeymsla í kjallara.

Í sameign er sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.
Að hluta til er íbúðin í upprunalegu ástandi og því tækifæri fyrir nýja eigendur að endurnýja eftir eigin smekk. Búið er að samþykkja í húsinu að skipta um glugga í norðurhlið - eldhúsi og svefnherbergi og mun seljandi greiða það.

Nánari upplýsingar veitir:
Einar S. Valdimarsson, löggiltur fasteignasali
Sími 840 0314
einar@provobis.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Pro vobis ehf.
https://provobis.is

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Breiðhöfði 15 (501)
Breiðhöfði 15 (501)
110 Reykjavík
79.7 m2
Fjölbýlishús
211
1053 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Breiðhöfði 17 (206)
Bílastæði
Breiðhöfði 17 (206)
110 Reykjavík
109.1 m2
Fjölbýlishús
413
1053 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Breiðhöfði 17 (307)
Bílastæði
Breiðhöfði 17 (307)
110 Reykjavík
108.1 m2
Fjölbýlishús
413
1063 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7a (305)
Opið hús:31. ágúst kl 16:30-17:00
1.jpg
Eirhöfði 7a (305)
110 Reykjavík
110.4 m2
Fjölbýlishús
312
887 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin