RE/MAX og Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali kynna í sölu fallega 3ja herbergja neðri hæð í tvíbýli, eigninni fylgir herbergi ásamt baðherbergi í kjallara. Nýlegar innréttingar eru í allri íbúðinni þar á meðal eldhúsinnrétting, hurðir, skápar, parket er á gólfum og hluti baðherbergis er endurnýjað. Raflagnir og ofnar eru nýir að mestu leyti. Falleg eign á vinsælum stað sem býður upp á útleigutekjur. Mjög góð íbúð í litlu fjölbýlishúsið þar sem stutt er í grunn- og leikskóla, íþróttasvæði, og fjölbreytta útivist sem og miðbæ Hafnarfjarðar.
Samkvæmt eignaskiptasamningi er hæðin skráð 60,7 fm og herbergi og geymsla í kjallara 23,2 fm.
Skoðaðu eignina í 3D hér.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is
Frekari upplýsingar um eignina:Komið inn í hol sem leiðir í aðrar vistarverur íbúðar.
Eldhús er bjart og með borðkrók, góðri eldhúsinnréttingu og raftækjum frá AEG.
Tvær stofur, rúmgóðar með parket á gólfi. Hægt er að breyta annarri stofunni í svefnherbergi.
Svefnherbergi er með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt að hluta, sturta, upphengt salerni og innrétting með vask.
Í kjallara er sérherbergi með eldhúsinnréttingu og sér baðherbergi sem er hluti af þvottahúsi sem var minnkað á kostnaðu þvottahús.Sér geymsla er í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi, þessi eign nýtir þvottahús í dag. Íbúðinni fylgir bílastæðaréttur á lóðinni.
Íbúðarherbergi í kjallara hefur verið í leigu til sama aðila lengi.
Eigendur hæðanna hafa útbúið tvö baðherbergi í hluta þvottahúss sem tilheyra sitt hvoru leiguherberginu sem er í kjallara.
Húsið sjálft hefur verið endursteinað og lóð eignar er snyrtileg.Mjög góð íbúð í litlu fjölbýlishúsið þar sem stutt er í grunn- og leikskóla, íþróttasvæði, og fjölbreytta útivist sem og miðbæ Hafnarfjarðar.Upplýsingar:
- Búið er að skipta um tvo glugga.
- Móða er á milli glerja í að minnsta kosti tveimur gluggum.
- Aðilum er bent á að skoða vel eignina.
- Húsið var steinað í kringum 2008/2009 að sögn seljanda.
- Rafmagnstafla var endurnýjuð árið 2019.
- Skólp hefur verið endurnýjað að hluta.
- Þak var yfirfarið fyrir um fimm árum, pússað og málað samkv. upplýsingum frá húsfélagi.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 820-0490, gudrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.