Domusnova Akranesi og Soffía Sóley lögg.fasteignasali kynna:
* EYRARFLÖT 4 * Björt, falleg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð (118.1 m²) með sérinngangi á 2. hæð ásamt sérgeymslu (8.7 m²) = 126.8 m² í 8 búða fjölbýlishúsi á 2 hæðum. Sér inngangur af sameiginlegum svalagangi.
Staðsett stutt frá leikskóla, grunnskóla, sundlaug, íþróttahúsi, hverfisbúð og útivistasvæði.
Lýsing eignar:
Forstofa með flísum á gólfi, fataskápur.
Hol, stofa, eldhús og gangur með samfelltu parketi.
Tvö barnaherbergi með parketi á gólfi og skápum.
Hjónaherbergi með góðum skápum og parketi á gólfi.
Þvottaherbergi með flísum á gólfi, vaskborði, hillum og viftu (ekki gluggi) .
Baðherbergi með flisum á gófli og veggjum, hvít innrétting, speglar í efri skápum, sturta, rafmagns handklæðaofn, vifta (ekki gluggi).
Herbergi (parket, skápur).
Stofa með dyrum út á suðursvalir
Eldhús, hvít innrétting, eyja, helluborð, ofn, háfur, innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Hvítar innihurðir.
Sér geymsla með glugga, í sameiginlegu rými á 2. hæð, parket á gólfi, hillur.
Endurnýjað: Eldhúsinnrétting, parket á alla íbúðina 2019.
Annað: Sameiginleg hjólageymsla og geymsla á jarðhæð. Geymsla fyrir bíldekk undir tröppum.
Fjórar virkar hleðslustöðvar á bílaplani fyrir rafmagnsbíla (allt klárt fyrir fjórar í viðbót). Steypt bílaplan. Staðsteypt hús, steinað að utan.
Staðsett stutt frá leikskólum, Grundaskóla, verslun, leikvelli, íþrótta- og útivistarsvæði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.