Þriðjudagur 18. ágúst
Fasteignaleitin
Skráð 18. ágúst 2026

Bjarkarás 15

Jörð/LóðSuðurland/Selfoss-805
Verð
8.900.000 kr.
Fasteignamat
4.310.000 kr.
Mynd af Jón Smári Einarsson
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur
Garður
Pallur
Fasteignanúmer
2523246
Landnúmer
234110
Húsgerð
Jörð/Lóð
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Bjarkarás 15, sumarhúsalóð með samþykktum teikningum af 145 fm sumarhúsi.
Jón Smári Einarsson lgf. og Fasteignaland kynna eignina Bjarkarás 15, 805 Selfos, fallega sumarhúsalóð á 8.164 fm eignarlandi í landi Búrfells II í Grímsnes- og Grafningshreppi.


Lýsing:
Samþykktar teikningar, ásamt raflagnateikningu af 145 fm sumarhúsi fylgja með í kaupum. 
Rafmagn og kalt vatn við lóðarmörk en hitaveita er ekki á svæðinu.
Heimilt byggingarmagn á lóðinni er um 245 fm samkvæmt deiliskipulagi og síðari breytingum þess. Byggja má eitt aukahús, geymslu, gróðurhús eða gestahús allt að 50 fm. Byggingarmagn miðast við hámarksnýtingahlutfall upp á 0,03
Lóðin er með fallegum klapparásum og lyngmóa.

Teikningin af húsinu er T laga til að skapa gott skjól og er teiknað með þremur rúmgóðum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, annað inn af hjónaherbergi og hitt í miðju húsinu með útgengi á verönd, alrými í suðurhlutanum hvar gert er ráð fyrir eldhúsi og stofu með stórri hurð út á veröndina og gólfsíðum gluggum. Þá er geymsla og tæknirými í vesturálmunni sem gengið er um utanfrá. Um er að ræða timburhús sem gert er ráð fyrir sem sé á steyptri gólfplötu með gólfhitalögnum. Sjá teikningu hér og raflagnateikningu hér

Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er kr. 25.000 á ári. 

Staðsetning og nærumhverfi:
Frá Reykjavík eru aðeins um 70 km sé ekið um Hellisheiði. Styttra um Nesjavallaveg. Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir.

Nánari upplýsingar veitir:
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.is
860-6400

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 . 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Selvogsbraut 45 LÓÐ
Selvogsbraut 45 LÓÐ
815 Þorlákshöfn
660.3 m2
Jörð/Lóð
98 þ.kr./m2
65.000.000 kr.
Skoða eignina Miðbær - Miðfell
Miðbær - Miðfell
846 Flúðir
971,000 m2
Jörð/Lóð
Fasteignamat 658.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Ferjubakki 5
Skoða eignina Ferjubakki 5
Ferjubakki 5
805 Selfoss
Jörð/Lóð
28.000.000 kr.
Skoða eignina Freyjustígur 24
Skoða eignina Freyjustígur 24
Freyjustígur 24
805 Selfoss
Jörð/Lóð
17.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin