Fasteignasalan Hvammur 466-1600
Geislagata 10 íbúð 202 - Skemmtileg 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýli í miðbæ Akureyrar - stærð 53,7 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, svefnherbergi og baðherbergi, auk sér geymslu undir stiga.
Forstofa er með parketi á gólfi og þreföldum, hvítum sprautulökkuðum fataskáp.
Í
eldhúsi er hvít sprautulökkuð innrétting með beyki bekkplötu og flísum á milli skápa.
Stofa og eldhús eru í björtu og opnu rými þar sem er parket á gólfi, gluggar til suðurs og hurð út á skemmtilegar suður svalir. Hvít sprautulökkuð innrétting og flísar á milli skápa.
Svefnherbergið er rúmgott og með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með spónlagðri eikar innréttingu, upphengdu wc og sturtu.
Sér
geymsla tilheyrir íbúðinni, (merkt 204) og er hún undir stiga sem liggur upp á 3ju hæð. Þar er plast parket á gólfi og hillur. Ekki er full lofthæð í geymslunni.
Annað- Innbú getur fylgt með við sölu eignar.
-
Á jarðhæðinni undir stigapalli er geymsla sem er í sameign með íbúðum á 2. og 3ju hæð hússins.
- Íbúðin hefur verið í skammtímaleigu.
- Vel staðsett eign í miðbæ Akureyrar.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.