OPIÐ HÚS - BRÚARÁS 11 - MIÐVIKUDAGINN 26. ÁGÚST - FRÁ KL.17.00 - 17.30.
Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Fallegt og opið 250 fm raðhús á þremur hæðum, með rúmgóðum bílskúr, fallegum garði fyrir framan og aftan hús. Heitur pottur á palli á milli húss og bílskúrs. Aukaíbúð á neðri hæð hússins sem seljendur hafa haft leigjendur í en stendur auð í dag. Nýverið var skipt um allan gluggarammann og glerið í stofu ásamt svalahurð. Járn og pappi hefur verið endurnýjað á húsi og þak á bílskúr hefur líka verið málað.
Stutt er í alla helstu þjónustu eins og leik- og grunnskóla, íþróttastarf Fylkis, sundlaug, náttúruparadísin Elliðarárdalurinn, verslanir, bakarí og læknaþjónusta er skammt frá.
Íbúð á hæð 96 fm (merkt 06-0101), íbúð í kjallara 96 fm (merkt 06-0001), íbúðarherbergi í risi 16 fm (merkt 06-0201) og bílskúr er 42 fm (merkt 16-0101) samtals er eignin 250 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.isÍbúðarrými IForstofa er með flísum á gólfi og góðum skápum.
Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á svalir þaðan sem hægt er að labba niður í garðinn á bakvið hús.
Eldhús er með flísum á gólfi, viðarinnréttingu og mósaík flísum á milli efri og neðri skápa. Inn af eldhúsi er búr.
Svefnherbergin eru þrjú og eru með parketi á gólfum. Aðalsvefnherbergi er svefnloft á efstu hæð sem myndar rúmgóða hjónasvítu sem er 16 fm og svo meira rými sem er undir súð og telur því ekki í heildarfermetrum hússins. Einnig eru góðar svalir yfir stofuna sem hleypa líka birtu inn. Inn af hjónasvítu er svo herbergi. Svo er rúmgott herbergi sem er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi, baðkar, handklæðaofn, wc og skápar yfir og undir vask.
Þvottahús er með flísum á gólfi, vinnuborð, vaskur og snúrur.
Bílskúrinn er rúmgóður með steyptu gólfi, heitt og kalt vatn, rafmagn og gott milliloft
Íbúðarrými IIForstofa er með flísum á gólfi og góðum skápum.
Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á hellulagða verönd.
Svefnherbergin eru þrjú og eru með parketi á gólfum
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar, sturta, wc, handklæðaofn og innrétting undir vask.
Þvottahús er með flísum á gólfi, vinnuborð, vaskur og snúrur.