Þriðjudagur 29. september
Fasteignaleitin
Skráð 29. sept. 2026

SPÁNAREIGNIR -San Miguel de Salinas

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
140 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
36.400.000 kr.
Fermetraverð
260.000 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Jarðhæð
Garður
Svalir
Pallur
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
114290926
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Garður
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*NÝTT Í SÖLU* *NOTALEGAR OG VEL STAÐSETTAR ÍBÚÐIR Í EKTA SPÆNSKUM SMÁBÆ* *FRÁBÆR VERÐ* *SÉR BÍLASTÆÐI* *SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR*


Fallegar og vel hannaðar nýjar íbúðir á frábæru verði á góðum stað í San Miguel de Salinas, rótgrónum spænskum smábæ rétt hjá fjölmörgum góðum golfvöllum og í örstuttu göngufæri frá verslunum, veitingastöðum, skóla, götumarkaði ofl. sem gerir lífið á Spáni skemmtilegt.  Um 40-50 mín akstur suður af Alicante.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is, 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, 0034 615 112 869,


Í boði eru íbúðir með tveimur eða þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Góð stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Verönd og sér garður eða góðar svalir og auk þess aðgengi að glæsilegum sameiginlegum sundlaugargarði.

4ja herb. íbúðir ( 3 svefnh.) eru 80 fm
Verönd frá 60 - 156 fm
Sér garður 97 - 239 fm

Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. Sér bílastæði í bílakjallara eða utandyra.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  Las Colinas,  La Finca, Vistabella,  Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 15 mín akstur er niður á ströndina í Dehesa de Campoamor og Cabo Roig, ca. 15 mín. akstur í  La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina.

Verð miðað við gengi 1Evra=140ISK.
3 svefnh. + 2 baðh. verð frá 259.900* evrur (36.400.000 ISK) 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.
*Íbúð á jarðhæð, 80 fm + 60 fm verönd + 101 fm garður

Á sama stað er hægt að fá minni íbúðir:
2 svefnh. + 2 baðh. verð frá 194.900 evrur (27.300.000 ISK) +10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.

Íbúðirnar verða tilbúnar til afhendingar í október 2028.

Hér er um að ræða notalega eign í rólegu og fallegu umhverfi. Tilvalið fyrir ungar barnafjölskyldur sem vilja búa í sól og góðu veðri allt árið, enda er góður skóli í örstuttu göngufæri og öll þjónusta í nærumhverfi. Einnig draumastaður golfarans sem vill spila marga og skemmtilega golfvelli.

Þessar íbúðir seljast hratt, enda frábær staðsetning og gott verð. Hafið samband og fáið allar upplýsingar.

Meira um SAN MIGUEL DE SALINAS:
San Miguel de Salinas er skemmtilegur spænskur bær í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Mil Palmeras, Campoamor, Cabo Roig, La Zenia, Torrevieja, La Mata, Guardamar o.fl.  Bærinn er umkringdur fallegri sveit þar sem augað lítur fallega sítrus- og möndlurækt og þjóðlendu garð Sierra Escalona rétt við þröskuldinn. Hægt er að ganga og hjóla marga kílómetra meðfram síkinu sem liggur rétt við bæinn.
 
Í San Miguel de Salinas er mikið úrval af skemmtilegum veitingastöðum, bæði spænskum og alþjóðlegum (tæplega 30 í miðbænum einum, sem þýðir að árlegur tapas-viðburður er mjög vinsæll!!). Ef þú ert að leita að áfangastað til að dvelja í fríum, eða stað til að búa á allt árið um kring, þá er San Miguel de Salinas frábær kostur þar sem í bænum hefur þú alla nauðsynlega þjónustu og  öll  þægindi (góðir grunn- og framhaldsskólar, bankar, heilsugæslustöð sem er opin allan sólarhringinn, apótek, góð aðstaða til íþrótta, td. sundlaug, fótbolta- og frjálsíþróttavöllur, tennisvellir, padelvellir, körfuboltavellir, petanca ofl.
Í bænum er líka skemmtileg  blanda af spænskum og alþjóðlegum nágrönnum.
 
Stemmingin er þægileg og afslappandi og verð á börum og veitingastöðum hafa tilhneigingu til að vera lægri en á ströndinni, td. glas af góðu rauðvíni beint úr tunnunni. Vikulegur miðvikudagsmarkaður er frábært tækifæri til að birgja sig upp af staðbundnum ferskum ávöxtum og grænmeti, skinkum, ostum, ólífum, fötum og skóm o.s.frv., áður en þú færð þér drykk og tapas í einni af vinalegu tavernunum í bænum! 
 
Það er góð  leigubílaþjónusta á staðnum og almenningsvagnar ganga nokkrum sinnum á dag til Torrevieja, Orihuela og Murcia.
Alicante og Murcia flugvöllur eru báðir í um 40-50 mínútna akstursfjarlægð. Netfyrirtækið á staðnum býður upp á áreiðanlegar, háhraða (ljósleiðara) nettengingar, sem auðveldar fólki að vinna í fjarvinnu.

San Miguel er staður þar sem þú nýtur hefðbundins  spænsks lífstíls og menningar, án þess að fórna þægindum af fyrsta flokks aðstöðu og umhverfi. 

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Við erum rótgróin íslensk fasteignasala og höfum um árabil sérhæft okkur í sölu fasteigna á Spáni.
Löggiltur íslenskur fasteignasali með mikla reynslu af fasteignasölu á Spáni sér um allt söluferlið og leggur áherslu á trausta og örugga þjónustu. Í boði eru góðar heildarlausnir þar sem öllu kaupferlinu er fylgt vel eftir frá upphafi til enda.

Við aðstoðum við að skipuleggja skoðunarferðina, velja staðsetningu og heppilega eign, kaupsamningsgerð, útvegum NIE númer, aðstoðum við fjármögnun, bankamál og allt sem til fellur.
Þú ert í góðum höndum hjá okkur.

Eiginleikar: ný eign, verönd, sér garður, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, golf, sér bílastæði
Svæði: Costa blanca, San Miguel de Salinas,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
114290926

Myndir (10)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langalína 24
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Langalína 24
Langalína 24
210 Garðabær
130.1 m2
Fjölbýlishús
322
1098 þ.kr./m2
142.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10 - 102
Bílastæði
Opið hús:01. okt. kl 17:30-18:00
Hafnarbraut 10 - 102
200 Kópavogur
128.2 m2
Fjölbýlishús
423
912 þ.kr./m2
116.900.000 kr.
Skoða eignina Hulduholt 5
Skoða eignina Hulduholt 5
Hulduholt 5
603 Akureyri
150.7 m2
Raðhús
413
Fasteignamat 79.050.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR -San Miguel de Salinas
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR -San Miguel de Salinas
Spánn - Costa Blanca
89 m2
Fjölbýlishús
322
307 þ.kr./m2
27.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin