Reykjavegur í landi Efri-Reykja, 801 Bláskógabyggð. Hitaveita, heitur pottur og lokað svæði með rafmagnshliði.Fasteignaland kynnir: Sumarhús við Reykjaveg i landi Efri-Reykja. Um er að ræða 72,2 fm hús sem var byggt árið 1984. Á lóðinni er einnig geymsla ca. 6 fm.
Lóðin er leigulóð 3.489 fm, kjarri- og skógi vaxin. Stór sólpallur með grindverki og skjólveggjum ásamt heitum potti. Húsið hefur verið endurnýjað talsvert á síðustu 2,5 ári.
Lýsing á eign: Forstofa með flísum á gólfi og góðu skápaplássi. Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfi. Herbergisgangur með parketi á gólfi og góðu skápaplássi. Baðherbergi með parketiá gólfi, hvígtri innréttingu og sturtuklefa, útgengi út á sólpall. Stofan er með góðri lofthæð, parketi á gólfi og útgengi út á sólpall. Eldhús með parketi á gólfi, fallegri hvítri innréttingu og vönduðum tækjum.
Af sólpalli er gengið inn í geymslu (þvottahús).
Stór sólpallur með skjólgirðingu. Á sólplalli er geymsla ca. 6 fm.
Lóðin er 3.489 fm leigulóð, kjarri- og skógi vaxin með glæsilegu útsýni.
Á lóðinni eru leiktæki.
Húsgögn og fleira fylgir með í kaupum á eigninni.
Góð aðkoma og næg bílastæði.
Þetta svæði er lokað með rafmagnshliði (símahlíð).
Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir.
Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er um kr. 15.000 á ári.
Lóðarleiga og hitaveita er ca. kr. 105.000.á ári.-
Upplýsingar gefa: Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893 1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Hrönn Ingólfsdóttir, löggiltur fasteignasali, s:
692-3344, netfang:
hronn@fasteignaland.isÁrni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali, s. 898-0508, netfang: arni@fasteignaland.is
Björgvin Þór Rúnarsson, löggiltur fasteignasali, s. 855-1544, netfang: bjorgvin@fasteignaland.is