Þriðjudagur 13. maí
Fasteignaleitin
Opið hús:13. maí kl 17:00-17:30
Skráð 9. maí 2025
Deila eign
Deila

Kjóahraun 1

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
174.5 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
159.800.000 kr.
Fermetraverð
915.759 kr./m2
Fasteignamat
120.050.000 kr.
Brunabótamat
79.200.000 kr.
Mynd af Freyja Sigurðardóttir
Freyja Sigurðardóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1999
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2236512
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
síðan húsið var byggt (nema á baðherbergjum)
Raflagnir
upphaflegar (nýir rofar og tenglar)
Frárennslislagnir
síðan húsið var byggt
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
upphaflegt
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Engir gallar sem starfsmönnum Hraunhamars er kunnugt um.
Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is kynna: Glæsilegt, vandað og velskipulagt  5-6 herbergja tvílyft einbýli á þessum eftirsótta stað í hrauninu miðsvæðis í Hafnarfirði, í göngufæri við miðbæinn, Hellisgerði ofl. 
Húsið stendur á afar fallegum og friðsælum stað í hverfinu (Einarsreitnum) Lokaður botnlangi, hornlóð/jaðarlóð, frábært útsýni og mikið privat staðsetning. Hraunlóðin/garðurinn er glæsilegur með pöllum og fallegum blóma og trjágróðri.  Sjón er sögu ríkari !


Neðri hæð: Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur og skóskúffa felld undir stiga upp á efrihæð. Glæsilegt baðherbergi með flottri sturtuaðstöðu,  Eldhús er glæsilegt, bjart og rúmgott og með aukinni lofthæð, það var allt endurnýjað 2018  Flísar á gólfi, sérsmíðuð innrétting frá Þúsund fjölum ehf með stórri eyju, mikið skápapláss. Hiti í gólfi. Ljós marmara quartssteinn á eyju og eldhúsbekk. 90cm breið SMEG eldavél með gas helluborði. Tvöfaldur ísskápur með frystiskúffum og klakavél frá Liebherr. Ný kvörn undir eldhúsvaskinum. Mikil birta um stóra glugga, hurð út á pall. Mikið skápapláss er á neðri hæðinni. Stofa og borðstofa: Opið og bjart rými sem flæðir saman við eldhús, 30mm þykk furugólfborð á gólfi.  Sjónvarpsrými/herbergi innaf bílskúr (er hluti af bílskúrparketlagt og með óbeinni lýsingu í lofti. Þvottaherbergi er rúmgott innaf gangi, hvít innrétting, útgengt í garðinn.

Efri hæð skiptist í þrjú rúmgóð svefnherbergi og glæsilegt baðherbergi með baðkari, hægt er á einfaldan hátt, að breyta einu hjónaherbergi í tvö þannig að verði 4 herbergi á efri hæð.(sjá teikningu)  Kvistir í herbergjum. Allir innveggir eru léttir svo auðvelt er að breyta skipulagi. Gólf: 30mm þykk furugólfborð á gangi og herbergjum. 

Öll rými hafa verið endurnýjuð á undanförnum árum. Eldhúsið var endurnýjað og sett upp sérsmíðuð innrétting og ný tæki 2018. Baðherbergið á neðri hæð er glæsilegt  var endurnýjað 2019 með Vola sturtutækjum. Baðherbergið á efri hæð er glæsilegt og var endurnýjað 2024 með frístandandi baðkari. Gólfborð á neðri hæð slípuð og lökkuð 2022. 

Stigi/stigahús á milli hæða er bjartur og staðsmíðaður í aldamótastíl, og stigaþrep eru teppalögð. 

Garðurinn er perla sem skartar sínu fegursta á sumrin. Nýtt gróðurhús á palli, er framan við hurð úr eldhúsi. Stór hæðaskiptur pallur er við suð-vesturhlið og inn eftir norð-vesturhlið. Tröppur og malarstígur er frá garðinum niður á spark/róluvöll fyrir neðan húsið. Paradís fyrir fjölskyldu með börn. Framan við húsið er hellulagt plan með hita. Steinsteyptir blóma/tré potar eru á stéttinni. Þakskyggni nær yfir 1/3 af innkeyrslu framan við skúr sem tekur vætuna í rigningu eða snjókomu.
Bílskúr/geymsla, 3ja fasa rafmagn, hleðslustöð fyrir rafbíl.

Gerekti í kringum glugga og loftkverkum eru í aldamótastíl, einnig er nýtt rofa og tenglaefni í rafmagnsdósum með árið 1930 útliti/seria, frá Berker. Búið að setja Plejd í böðin og tvö herbergi. (ljósastýring) Útiljós eru á sólúri.
Uppsett jólaseria á tveimur stórum trjám í garði og skjólvegg fylgir með. Fallegir kvistir eru í herbergjum á efri hæðinni. Geymsluris (yfir gangi á efri hæðinni, niðurdreginn stigi)


Ath: Eignin er nokkuð breytt frá upphaflegum teikningu.

Þetta er mjög áhugaverð eign til að skoða frekar, á þessum einstaka stað í Hafnarfirði.


Nánari upplýsingar gefa Helgi Jón Harðarson sölustj. s.893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Freyja M Sigurðardóttir lgf. s. 862-4800 freyja@hraunhamar.is


Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í  42 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1999
36.4 m2
Fasteignanúmer
2236512
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
13.250.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hjallabraut 47C
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Hjallabraut 47C
220 Hafnarfjörður
158.3 m2
Raðhús
423
1060 þ.kr./m2
167.800.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47B
Skoða eignina Hjallabraut 47B
Hjallabraut 47B
220 Hafnarfjörður
159.7 m2
Raðhús
423
1038 þ.kr./m2
165.800.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47A
Skoða eignina Hjallabraut 47A
Hjallabraut 47A
220 Hafnarfjörður
159.7 m2
Raðhús
423
1038 þ.kr./m2
165.800.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47
Skoða eignina Hjallabraut 47
Hjallabraut 47
220 Hafnarfjörður
157.5 m2
Raðhús
423
1065 þ.kr./m2
167.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin